Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði á fundi með starfsmönnum utanríkisráðuneytisins í gær, að hún mundi láta af embætti, jafnvel þótt Obama yrði endurkjörin í haust. Hún sagði að tími væri komin til að hún fyndi út úr því hversu þreytt hún væri orðin eftir 20 ára í bandarískri pólitík, þar sem hún hefði verið forsetafrú, öldungadeildarþingmaður, frambjóðandi við forsetakjör og utanríkisráðherra. Frá þessu segir Guardian í dag.
Stjórnlagaráð lauk störfum og skilaði alþingi tillögum að nýrri stjórnarskrá 29. júlí 2011. Þingnefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, var falið að ræða tillögur stjórnlagaráðs. Hún hefur kallað fyrir sig fjölda sérfræðinga og hefur enginn þeirra talið fært að afgreiða tillögunnar án viðamikilla ...
ESB-dómstóllnum falið að segja álit sitt á ACTA-samningnum
ESB-dómstóllinn verður krafinn álits á því hvort ACTA-samningurinn um vernd höfundar- og hugverkaréttinda standist lög ESB. Samningurinn hefur sætt gagnrýni fyrir að takmarka frelsi í netheimum. Karel De Gucht, viðskiptamálastjóri ESB, segir að dómararnir verði beðnir um að láta í ljós álit á því h...
Bylting í þjónustu leigubíla veldur uppnámi í Þýskalandi
myTaxi er nýtt forrit í Þýskalandi sem gerir leigubílastöðvar óþarfar fyrir snjallsímaeigendur. Þeir geta nú pantað leigubíl án þess að hringja í stöð. Forritið notar GPS til að senda pöntun á nokkrum sekúndum viðskiptavinarins til næsta lausa bílstjóra. Þegar bílstjórinn hefur svarað kallinu getur viðskiptavinurinn fylgst með ferð hans á síma sínum.
Danir greiða ekki þjóðaratkvæði um ríkisfjármálasamning ESB
Danska dómsmálaráðuneytið hefur úrskurðað að ekki skuli borið undir þjóðaratkvæði hvort Danir gerist aðilar að ríkisfjármálasamningi ESB-ríkjanna.
Sænska götublaðið Expressen segir að WikiLeaks undirbúi ófrægingarherferð á hendur Svíum til að stöðva framsal Julian Assange, forgöngumanns WikiLeaks, frá Svíþjóð til Bandaríkjanna. Fyrir WikiLeaks vaki meðal annars að birta skjöl sem sýni að Carl Bildt, utanríkisáðherra Svía, hafi á ólöglegan hátt miðlað upplýsingum til Bandaríkjanna á áttunda áratugnum.