
Markaðir í Evrópu og Japan lækkuðu í nótt og í morgun. London lækkaði um 0,53% við opnun, Frankfurt um 0,26% og París um 0,55%. Japan lækkaði líka í nótt um 0,09% en Hong Kong hækkaði um 0,31% og Shanghai um 1%.
Hins vegar lækkaði Dow Jones í gær um 0,18% og Nasdaq um 0,46%.
Um sæstrengi til aflflutnings á milli Íslands og Evrópu
„Eitthvað annað“ í umræðunni um atvinnusköpun á Íslandi hefur nú orðið sér rækilega til skammar, þar sem það hefur reynzt algerlega merkingarlaust og gagnslaust í framkvæmd. Því var aldrei ætlað annað hlutverk en að afvegaleiða umræðuna frá háu þjóðhagslegu notagildi stóriðju fyrir íslenzkt atvinnulíf.
ESB-dómstóllnum falið að segja álit sitt á ACTA-samningnum
ESB-dómstóllinn verður krafinn álits á því hvort ACTA-samningurinn um vernd höfundar- og hugverkaréttinda standist lög ESB. Samningurinn hefur sætt gagnrýni fyrir að takmarka frelsi í netheimum. Karel De Gucht, viðskiptamálastjóri ESB, segir að dómararnir verði beðnir um að láta í ljós álit á því h...
Bylting í þjónustu leigubíla veldur uppnámi í Þýskalandi
myTaxi er nýtt forrit í Þýskalandi sem gerir leigubílastöðvar óþarfar fyrir snjallsímaeigendur. Þeir geta nú pantað leigubíl án þess að hringja í stöð. Forritið notar GPS til að senda pöntun á nokkrum sekúndum viðskiptavinarins til næsta lausa bílstjóra. Þegar bílstjórinn hefur svarað kallinu getur viðskiptavinurinn fylgst með ferð hans á síma sínum.
Danir greiða ekki þjóðaratkvæði um ríkisfjármálasamning ESB
Danska dómsmálaráðuneytið hefur úrskurðað að ekki skuli borið undir þjóðaratkvæði hvort Danir gerist aðilar að ríkisfjármálasamningi ESB-ríkjanna.
Sænska götublaðið Expressen segir að WikiLeaks undirbúi ófrægingarherferð á hendur Svíum til að stöðva framsal Julian Assange, forgöngumanns WikiLeaks, frá Svíþjóð til Bandaríkjanna. Fyrir WikiLeaks vaki meðal annars að birta skjöl sem sýni að Carl Bildt, utanríkisáðherra Svía, hafi á ólöglegan hátt miðlað upplýsingum til Bandaríkjanna á áttunda áratugnum.