Miðvikudagurinn 22. febrúar 2012

Enda Kenny: Fólk tók æði í lántökum-græðgin tók völdin og kerfið hrundi


27. janúar 2012 klukkan 09:02
Enda Kenny

Enda Kenny, forsætisráðherra Írlands sagði í umræðum í Davos í Sviss í gær, að Írar hefðu tekið æði í lántökum. Kerfi, sem hefði fóstrað græðgi hefði farið úr böndum og hrunið.

Irish Times segir í morgun, að Kenny sé gagnrýndur harðlega fyrir þessi ummæli heima fyrir og þau túlkuð á þann veg, að hann kenni almenningi um ófarir Íra. Hann tali tungum tveim. Á heimavígstöðvum segi hann við írsku þjóðina að hrunið á Írlandi hafi ekki verið hennar sök. Á erlendum vettvangi tali hann með öðrum hætti.

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Björn Bjarnason Pistill

Meirihluti alþingis skilar auðu um stjórnar­skrárbreytingar - kaupir Þór Saari til að bjarga ríkis­stjórninni

Stjórnlagaráð lauk störfum og skilaði alþingi tillögum að nýrri stjórnar­skrá 29. júlí 2011. Þing­nefnd, stjórnskipunar- og eftirlits­nefnd, var falið að ræða tillögur stjórnlagaráðs. Hún hefur kallað fyrir sig fjölda sér­fræðinga og hefur enginn þeirra talið fært að afgreiða tillögunnar án viðamikilla ...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

ESB-dómstóllnum falið að segja álit sitt á ACTA-samningnum

ESB-dómstóllinn verður krafinn álits á því hvort ACTA-samningurinn um vernd höfundar- og hugverkaréttinda standist lög ESB. Samningurinn hefur sætt gagnrýni fyrir að takmarka frelsi í netheimum. Karel De Gucht, viðskiptamála­stjóri ESB, segir að dómararnir verði beðnir um að láta í ljós álit á því h...

Bylting í þjónustu leigubíla veldur uppnámi í Þýskalandi

myTaxi er nýtt forrit í Þýskalandi sem gerir leigubílastöðvar óþarfar fyrir snjallsíma­eigendur. Þeir geta nú pantað leigubíl án þess að hringja í stöð. Forritið notar GPS til að senda pöntun á nokkrum sekúndum viðskiptavinarins til næsta lausa bíl­stjóra. Þegar bíl­stjórinn hefur svarað kallinu getur viðskiptavinurinn fylgst með ferð hans á síma sínum.

Danir greiða ekki þjóðar­atkvæði um ríkisfjármálasamning ESB

Danska dómsmála­ráðuneytið hefur úrskurðað að ekki skuli borið undir þjóðar­atkvæði hvort Danir gerist aðilar að ríkisfjármálasamningi ESB-ríkjanna.

Kristinn Hrafnsson boðar uppljóstranir WikiLeaks um Carl Bildt - sænsk blöð tala um ófrægingarherferð til bjargar Assange

Sænska götublaðið Expressen segir að WikiLeaks undirbúi ófrægingarherferð á hendur Svíum til að stöðva framsal Julian Assange, forgöngumanns WikiLeaks, frá Svíþjóð til Bandaríkjanna. Fyrir WikiLeaks vaki meðal annars að birta skjöl sem sýni að Carl Bildt, utanríkis­áðherra Svía, hafi á ólöglegan hátt miðlað upplýsingum til Bandaríkjanna á áttunda áratugnum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS