Papademos, forsætisráðherra Grikklands, gerði ríkisstjórn sinni í gær grein fyrir gömlum og nýjum kröfum þríeykisins, ESB/AGS/Seðlabanka Evrópu á hendur Grikkjum. Þær eru settar fram á 10 blaðsíðum, sem ráðherrann kynnti í gær. Hinar gömlu og nýju kröfur eru m.a.:
Fækkun opinberra starfsmanna um 150 þúsund frá og með 2015 eins og áður hefur komið fram, engar undanþágur frá launalækkun opinberra starfsmanna, niðurskurður á framlögum til varnarmála og heilbrigðismála, 5% lækkun á framlögum til almannatrygginga, fallið frá niðurfellingum á skuldum annarra við gríska ríkið, fallið frá þægilegum greiðsluskilmálum á skuldum annarra við ríkið, tvær til þrjár stórar einkavæðingar á öðrum fjórðungi þessa árs.
Ekathimerini segir að ekki sé minnzt á launalækkun í einkageiranum, sem hins vegar hefur verið til umræðu.
*Örlög evrunnar eru svo undarleg að þau mættu eignast eigið orð – evronía*. Mitterrand, þáverandi forseti Frakklands setti á sínum tíma sem skilyrði fyrir endursameiningu Þýskalands að Þjóðverjar köstuðu þýska markinu og tækju um sameiginlega evrópska mynt. Þjóðverjar höfðu lítinn áhuga á þessu;...
ESB-dómstóllnum falið að segja álit sitt á ACTA-samningnum
ESB-dómstóllinn verður krafinn álits á því hvort ACTA-samningurinn um vernd höfundar- og hugverkaréttinda standist lög ESB. Samningurinn hefur sætt gagnrýni fyrir að takmarka frelsi í netheimum. Karel De Gucht, viðskiptamálastjóri ESB, segir að dómararnir verði beðnir um að láta í ljós álit á því h...
Bylting í þjónustu leigubíla veldur uppnámi í Þýskalandi
myTaxi er nýtt forrit í Þýskalandi sem gerir leigubílastöðvar óþarfar fyrir snjallsímaeigendur. Þeir geta nú pantað leigubíl án þess að hringja í stöð. Forritið notar GPS til að senda pöntun á nokkrum sekúndum viðskiptavinarins til næsta lausa bílstjóra. Þegar bílstjórinn hefur svarað kallinu getur viðskiptavinurinn fylgst með ferð hans á síma sínum.
Danir greiða ekki þjóðaratkvæði um ríkisfjármálasamning ESB
Danska dómsmálaráðuneytið hefur úrskurðað að ekki skuli borið undir þjóðaratkvæði hvort Danir gerist aðilar að ríkisfjármálasamningi ESB-ríkjanna.
Sænska götublaðið Expressen segir að WikiLeaks undirbúi ófrægingarherferð á hendur Svíum til að stöðva framsal Julian Assange, forgöngumanns WikiLeaks, frá Svíþjóð til Bandaríkjanna. Fyrir WikiLeaks vaki meðal annars að birta skjöl sem sýni að Carl Bildt, utanríkisáðherra Svía, hafi á ólöglegan hátt miðlað upplýsingum til Bandaríkjanna á áttunda áratugnum.