ESB-nefnd sænska þingsins samþykkti föstudaginn 27. janúar skilyrta heimild til ríkisstjórnarinnar til að ganga að ríkisfjármálasamningnum til stuðnings evrunni á leiðtogafundi ESB 30. janúar.
Frederik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, og minnihlutastjórn hans samdi við jafnaðarmenn um efni þess umboðs sem ráðherrann hefur á leiðtogafundinum til að ganga að samningnum. Ríkisstjórnin mælti með aðild að ríkisfjármálasamningnum en jafnaðarmenn lýstu yfir ótta við að með aðildinni yrði Svíum laumað inn á evru-svæðið um „bakdyrnar“. Þeir höfnuðu aðildinni í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 2003.
Samkomulag stjórnarflokkanna og jafnaðarmanna hefur að geyma fjögur skilyrði sem sænski forsætisráðherrann mun kynna á fundinum í Brussel nk. mánudag. Eitt þeirra er að Svíum verði ekki gert skylt að framselja neitt af fjárlagavaldi sænska þingsins. Þá vilja Svíar ríkari aðild að ákvörðunum um framkvæmd samningsins en mælt er fyrir í drögum hans.
Jafnaðarmenn hafa lagt til að Svíar tryggi áhrif sín innan evru-svæðisins með því að eiga fulltrúa á fundum leiðtoga evru-ríkjanna þegar þeir ræði um ríkisfjármálasamninginn. Aðild ESB-ríkja sem ekki nota evru að evru-leiðtogafundum er viðkvæmt mál fyrir sum evru-ríki, einkum Frakka sem vilja ekki slíka sameiginlega fundi nema einu sinni á ári. Niðurstaða fundar ESB-nefndar sænska þingsins varð sú að gera kröfuna um setu á evru-leiðtogafundum ekki að úrslitaatriði. Finna mætti aðrar leiðir til að tryggja áhrif Svía ef kröfunni varðandi leiðtogafundina yrði hafnað.
Breska ríkisstjórnin er eina ESB-stjórnin sem ekki ætlar að taka afstöðu til aðildar að ríkisfjármálasamningnum. Stefnt er að því að ná samkomulagi um meginatriði samningsins 30. janúar og rita undir hann á fundi 1. og .2 mars.
*Örlög evrunnar eru svo undarleg að þau mættu eignast eigið orð – evronía*. Mitterrand, þáverandi forseti Frakklands setti á sínum tíma sem skilyrði fyrir endursameiningu Þýskalands að Þjóðverjar köstuðu þýska markinu og tækju um sameiginlega evrópska mynt. Þjóðverjar höfðu lítinn áhuga á þessu;...
ESB-dómstóllnum falið að segja álit sitt á ACTA-samningnum
ESB-dómstóllinn verður krafinn álits á því hvort ACTA-samningurinn um vernd höfundar- og hugverkaréttinda standist lög ESB. Samningurinn hefur sætt gagnrýni fyrir að takmarka frelsi í netheimum. Karel De Gucht, viðskiptamálastjóri ESB, segir að dómararnir verði beðnir um að láta í ljós álit á því h...
Bylting í þjónustu leigubíla veldur uppnámi í Þýskalandi
myTaxi er nýtt forrit í Þýskalandi sem gerir leigubílastöðvar óþarfar fyrir snjallsímaeigendur. Þeir geta nú pantað leigubíl án þess að hringja í stöð. Forritið notar GPS til að senda pöntun á nokkrum sekúndum viðskiptavinarins til næsta lausa bílstjóra. Þegar bílstjórinn hefur svarað kallinu getur viðskiptavinurinn fylgst með ferð hans á síma sínum.
Danir greiða ekki þjóðaratkvæði um ríkisfjármálasamning ESB
Danska dómsmálaráðuneytið hefur úrskurðað að ekki skuli borið undir þjóðaratkvæði hvort Danir gerist aðilar að ríkisfjármálasamningi ESB-ríkjanna.
Sænska götublaðið Expressen segir að WikiLeaks undirbúi ófrægingarherferð á hendur Svíum til að stöðva framsal Julian Assange, forgöngumanns WikiLeaks, frá Svíþjóð til Bandaríkjanna. Fyrir WikiLeaks vaki meðal annars að birta skjöl sem sýni að Carl Bildt, utanríkisáðherra Svía, hafi á ólöglegan hátt miðlað upplýsingum til Bandaríkjanna á áttunda áratugnum.