Wolfgang Schäuble, fjármálaráðherra Þýskalands, veitti David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, ákúrur föstudaginn 27. janúar fyrir að standa gegn því að ESB-ríkin stæðu saman um ríkisfjármálasamning til að sigrast á skuldavandanum á evru- svæðinu. Vegna afstöðu Breta fellur samingurinn ekki innan sáttmálakerfis ESB.
Anna Maria Corazza Bildt, sænskur ESB-þingmaður, átti orðastað við Schäumble á Davos-ráðstefnunni og fann að því að nýi samningurinn yrði utan ESB-sáttmálanna. Schäuble svaraði: „Mig langar að gefa þér farsímanúmer Davids Camerons.“
Þegar hann fékk hljóð að nýju eftir hlátur fundarmanna sagði Schäuble:
„Þetta er ekki brandari. Það yrði miklu betra og auðveldara til skilnings fyrir þá sem standa utan ESB ef við gerðum það sem við verðum núna að gera í ríkisfjármálasamningi okkar innan ramma ESB-sáttmálanna. Það verður þó ekki gert nema með einróma samþykki allra í samræmi við ákvæði ESB-sáttmálanna. Á meðan það næst ekki verðum við í evru-ríkjum 17 auk níu annarra, vona ég, að fara þessa leið. Öllum er velkomið að slást í hópinn.“
Stjórnlagaráð lauk störfum og skilaði alþingi tillögum að nýrri stjórnarskrá 29. júlí 2011. Þingnefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, var falið að ræða tillögur stjórnlagaráðs. Hún hefur kallað fyrir sig fjölda sérfræðinga og hefur enginn þeirra talið fært að afgreiða tillögunnar án viðamikilla ...
ESB-dómstóllnum falið að segja álit sitt á ACTA-samningnum
ESB-dómstóllinn verður krafinn álits á því hvort ACTA-samningurinn um vernd höfundar- og hugverkaréttinda standist lög ESB. Samningurinn hefur sætt gagnrýni fyrir að takmarka frelsi í netheimum. Karel De Gucht, viðskiptamálastjóri ESB, segir að dómararnir verði beðnir um að láta í ljós álit á því h...
Bylting í þjónustu leigubíla veldur uppnámi í Þýskalandi
myTaxi er nýtt forrit í Þýskalandi sem gerir leigubílastöðvar óþarfar fyrir snjallsímaeigendur. Þeir geta nú pantað leigubíl án þess að hringja í stöð. Forritið notar GPS til að senda pöntun á nokkrum sekúndum viðskiptavinarins til næsta lausa bílstjóra. Þegar bílstjórinn hefur svarað kallinu getur viðskiptavinurinn fylgst með ferð hans á síma sínum.
Danir greiða ekki þjóðaratkvæði um ríkisfjármálasamning ESB
Danska dómsmálaráðuneytið hefur úrskurðað að ekki skuli borið undir þjóðaratkvæði hvort Danir gerist aðilar að ríkisfjármálasamningi ESB-ríkjanna.
Sænska götublaðið Expressen segir að WikiLeaks undirbúi ófrægingarherferð á hendur Svíum til að stöðva framsal Julian Assange, forgöngumanns WikiLeaks, frá Svíþjóð til Bandaríkjanna. Fyrir WikiLeaks vaki meðal annars að birta skjöl sem sýni að Carl Bildt, utanríkisáðherra Svía, hafi á ólöglegan hátt miðlað upplýsingum til Bandaríkjanna á áttunda áratugnum.