
Fitch matsfyrirtækið tilkynnti síðdegis föstudaginn 27. janúar að það hefði lækkað lánshæfiseinkunn Ítalíu og Spánar vegna veikrar fjárhagsstöðu í skuldakreppunni.
Einkunn Ítalíu var lækkuð um tvö brot í A- úr A+ hið sama átti við um Spán sem lækkaði í A úr AA-.
Einkunnir Belgíu, Slóveníu og Kýpur voru einnig lækkaðar en fallið var frá neikvæðum horfum varðandi Írland.
Fyrir nokkrum dögum lækkaði matsfyrirtækið Standard & Poor's einkunnir níu evru-ríkja, þar á meðal Frakklands.
*Örlög evrunnar eru svo undarleg að þau mættu eignast eigið orð – evronía*. Mitterrand, þáverandi forseti Frakklands setti á sínum tíma sem skilyrði fyrir endursameiningu Þýskalands að Þjóðverjar köstuðu þýska markinu og tækju um sameiginlega evrópska mynt. Þjóðverjar höfðu lítinn áhuga á þessu;...
ESB-dómstóllnum falið að segja álit sitt á ACTA-samningnum
ESB-dómstóllinn verður krafinn álits á því hvort ACTA-samningurinn um vernd höfundar- og hugverkaréttinda standist lög ESB. Samningurinn hefur sætt gagnrýni fyrir að takmarka frelsi í netheimum. Karel De Gucht, viðskiptamálastjóri ESB, segir að dómararnir verði beðnir um að láta í ljós álit á því h...
Bylting í þjónustu leigubíla veldur uppnámi í Þýskalandi
myTaxi er nýtt forrit í Þýskalandi sem gerir leigubílastöðvar óþarfar fyrir snjallsímaeigendur. Þeir geta nú pantað leigubíl án þess að hringja í stöð. Forritið notar GPS til að senda pöntun á nokkrum sekúndum viðskiptavinarins til næsta lausa bílstjóra. Þegar bílstjórinn hefur svarað kallinu getur viðskiptavinurinn fylgst með ferð hans á síma sínum.
Danir greiða ekki þjóðaratkvæði um ríkisfjármálasamning ESB
Danska dómsmálaráðuneytið hefur úrskurðað að ekki skuli borið undir þjóðaratkvæði hvort Danir gerist aðilar að ríkisfjármálasamningi ESB-ríkjanna.
Sænska götublaðið Expressen segir að WikiLeaks undirbúi ófrægingarherferð á hendur Svíum til að stöðva framsal Julian Assange, forgöngumanns WikiLeaks, frá Svíþjóð til Bandaríkjanna. Fyrir WikiLeaks vaki meðal annars að birta skjöl sem sýni að Carl Bildt, utanríkisáðherra Svía, hafi á ólöglegan hátt miðlað upplýsingum til Bandaríkjanna á áttunda áratugnum.