Papademos, forsætisráðherra Grikklands á fundi með leiðtogum flokkanna þriggja, sem aðild eiga að ríkisstjórn hans í dag og vill tryggingu þeirra fyrir því, að þeir og flokkar þeirra samþykki nýjar kröfur og eldri kröfur ESB um skilmála fyrir frekari lánveitingum til Grikklands en ein af þeim nýju kröfum er frekari niðurskurður útgjalda, sem nemur 2,2 milljörðum evra. Papademos vill hafa þessa tryggingu í höndum áður en hann kemur til fundar við leiðtoga annarra ESB-ríkja á mánudag. Ekathimerini segir að það geti orðið erfitt fyrir Papademos að fá samþykki allra þriggja flokkanna.
Þá hefur þríeykið endurnýjað kröfur um að laun verði lækkuð í einkageiranum í Grikklandi og notar sem rökstuðning fyrir þeirri kröfu, að laun í Grikklandi séu hærri en á Spáni og í Portúgal. Þá vill þríeykið, að núverandi kjarasamningar innan einstakra greina grísks atvinnulífs verði látnir fjara út og að við lok samningstímans geti vinnuveitendur samið við einstaka starfsmenn í stað þess að gera heildarsamninga við verkalýðsfélög innan einstakra greina.
Stjórnlagaráð lauk störfum og skilaði alþingi tillögum að nýrri stjórnarskrá 29. júlí 2011. Þingnefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, var falið að ræða tillögur stjórnlagaráðs. Hún hefur kallað fyrir sig fjölda sérfræðinga og hefur enginn þeirra talið fært að afgreiða tillögunnar án viðamikilla ...
ESB-dómstóllnum falið að segja álit sitt á ACTA-samningnum
ESB-dómstóllinn verður krafinn álits á því hvort ACTA-samningurinn um vernd höfundar- og hugverkaréttinda standist lög ESB. Samningurinn hefur sætt gagnrýni fyrir að takmarka frelsi í netheimum. Karel De Gucht, viðskiptamálastjóri ESB, segir að dómararnir verði beðnir um að láta í ljós álit á því h...
Bylting í þjónustu leigubíla veldur uppnámi í Þýskalandi
myTaxi er nýtt forrit í Þýskalandi sem gerir leigubílastöðvar óþarfar fyrir snjallsímaeigendur. Þeir geta nú pantað leigubíl án þess að hringja í stöð. Forritið notar GPS til að senda pöntun á nokkrum sekúndum viðskiptavinarins til næsta lausa bílstjóra. Þegar bílstjórinn hefur svarað kallinu getur viðskiptavinurinn fylgst með ferð hans á síma sínum.
Danir greiða ekki þjóðaratkvæði um ríkisfjármálasamning ESB
Danska dómsmálaráðuneytið hefur úrskurðað að ekki skuli borið undir þjóðaratkvæði hvort Danir gerist aðilar að ríkisfjármálasamningi ESB-ríkjanna.
Sænska götublaðið Expressen segir að WikiLeaks undirbúi ófrægingarherferð á hendur Svíum til að stöðva framsal Julian Assange, forgöngumanns WikiLeaks, frá Svíþjóð til Bandaríkjanna. Fyrir WikiLeaks vaki meðal annars að birta skjöl sem sýni að Carl Bildt, utanríkisáðherra Svía, hafi á ólöglegan hátt miðlað upplýsingum til Bandaríkjanna á áttunda áratugnum.