Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands er nú í fyrsta sinn með meira fylgi í skoðanakönnunum í Frakklandi í fyrri umferð forsetakosninganna þar í landi en Francois Hollande, frambjóðandi sósíalista að því er fram kemur í Financial Times í dag. Í könnun, sem birt var í morgun reyndist Sarkozy vera með 28,5% fylgi í fyrri umferð en Hollande með 27%. Hins vegar er Hollande enn með meira fylgi í seinni umferð eða 54,5% á móti 45,5% Sarkozys en munurinn á milli þeirra hefur minnkað um tvö prósentustig.
Þessi nýja könnun var gerð í framhaldi af miklum útifundi Sarkozy á sunnudag þar sem tugþúsundir stuðningsmanna hans mættu þar sem hann hótaði m.a. að draga Frakkland út úr Schengen-samstarfinu. Ræðunni var sjónvarpað.
Sarkozy leggur nú áherzlu á að ná atkvæðum frá Marine Le Pen og virðist vera að takast það. Í þessari könnun fékk hún 16% sem er 1 prósentustig minna en áður.
Kosningastjórar Sarkozy telja að verði hann með flest atkvæði í fyrri umferð kosninganna auki það möguleika hans á að vinna Hollande í seinni umferðinni.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.