Atvinnuleysi á evru-svæðinu jókst enn í apríl-mánuði samkvæmt tölum sem birtar voru föstudaginn 1. júní og er það nú að meðaltali 11% á svæðinu en mest á Spáni 24,3%. Um 17,4 milljónir manna voru án atvinnu í evru-ríkjunum 17 og jókst fjöldinn um 110.000 í apríl segir í frétt frá Eurostat, hagstofu ESB.
Atvinnuleysi meðal ungs fólks eykst enn og í maí leituðu 3,36 milljórnir manna undir 25 ára að vinnu og eru þeir 214.000 fleiri en í síðasta mánuði.
Þegar litið er til ESB-ríkjanna allra jókst atvinnuleysi einnig í apríl í 10,3% og eru 24,76 milljónir manna án atvinnu innan ESB í heild.
Mest er atvinnuleysi á Spáni 24,3%, meira en 50% meðal ungs fólks. Í Grikklandi var atvinnuleysi 21,7% í febrúar, sem eru nýjasta tala þaðan, 15,2% í Lettlandi og Portúgal.
Minnst er atvinnuleysið í Austurríki 3,9%, í Lúcxemborg og Hollandi er það 5,2% og í Þýskalandi 5,4%
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.