Kostnaður lendi á hluthöfum og lánardrottnum
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur um skeið unnið að smíði tillagna, sem eiga að koma í veg fyrir að peningar skattgreiðenda verði notaðir til að bjarga bönkum, sem komnir eru í fjárhagsvandræði. Markmið þessara tillagna er að tryggja, að kostnaður við fall banka lendi á hluthöfum og lánardrottnum bankanna en að kostnaður skattgreiðenda verði lágmarkaður. Þetta kemur fram á BBC í dag, sem segir jafnframt að meginhugmyndirnar verði kynntar í dag. Hins vegar er talið ólíklegt að þær komist til framkvæmda fyrr en að tveimur árum liðnum.
Jafnframt er stefnt að því með hinum nýju reglum að tryggja að áhlaup á banka í einu landi eins og t.d. á Spáni eða Grikklandi leiði ekki til falls bankakerfisins í heild. Þá er lykilatriði að tryggja í slíkum tilvikum að hraðbankar virki.
BBC bendir á að fjármálakreppan hafa leitt til falls fjölmargra banka, Northern Rock í Bretlandi, Lehman Brothers í Bandaríkjunum, íslenzku bankanna, Fortis, sem er hollenzk-belgískur banki, Dexia, sem er fransk-hollenzkur banki og Anglo Irish Bank á Írlandi. Í frétt BBC er talið að spænskir bankar þurfi á að halda 80 milljörðum evra en hingað til hefur verið talað um 40 milljarða evra og hafa þeir samtals 23,5 milljarðar, sem Bankia þarf verið inn í þeirri tölu.
Eins og kunnugt er hafnaði ríkisstjórn Geirs H. Haarde kröfum um að íslenzka ríkið tæki ábyrgð á skuldbindingum íslenzku bankanna haustið 2008 en írska ríkisstjórnin á þeim tíma tók þveröfuga ákvörðun og tók ábyrgð á öllum skuldbindingum írskra banka.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur tekið afstöðu með kröfu brezkra og hollenzkra stjórnvalda um að íslenzkir skattgreiðendur beri ábyrgð á skuldum hinna föllnu íslenzku einkabanka.
Olíuvinnsla við Ísland (II): Þjónusta við orkuþríhyrning norður af Íslandi opnar ný tækifæri
Í BA-ritgerð í hagfræði, sem Hildur Sturludóttir skrifaði við Háskóla Íslands og birt var í febrúar á þessu ári er ferlinu við hugsanlega olíuvinnslu lýst með eftirfarandi hætti: "Fyrsta stigið kallast frumathugunarstig.
Forseti Kýpur fer fram á allsherjar endurskoðun björgunaraðgerða
Nikos Anastasiades, forseti Kýpur hefur skrifað leiðtogum evrusvæðisins bréf og farið fram á allsherjar endurskoðun á þeim skilmálum, sem Kýpur tók á sig vegna björgunarláns að upphæð 10 milljarðar evra. Í bréfinu segir forsetinn að Kýpur geti ekki uppfyllt þessa skilmála vegna þess að aðgerðirnar hafi skaðað efnahag landsins og bankakerfið meira en búizt var við.
Nefnd, sem fjallar um nýtt regluverk fyrir banka í kjölfar fjármálakreppunnar og starfar í tengslum við brezka þingið leggur til að æðstu stjórnendur banka skuli eiga yfir höfði sér fangelsisdóma og missi milljóna punda í bónusgreiðslum ef þeir eigi þátt í falli banka í framtíðinni. Nefndin er þverpólitísk og í henni sitja bæði þingmenn og aðrir.
Einar K. Guðfinnsson, forseti alþingis, ræðir stöðu Íslendinga í samfélagi þjóðanna í hátíðarræðu
Einar K. Guðfinnsson, forseti alþingis, flutti þjóðhátíðarræðu mánudaginn 17. júni í Búðardal. Hann vék meðal annars að stöðu Íslands og Íslendinga í samfélagi þjóðanna og sagði: „Svo sannarlega erum við Evrópuþjóð en það þýðir ekki að við viljum verða Evrópusambandsþjóð.“ Hér birtist kafli úr ræðu...
José Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB, sætir harðri gagnrýni franskra stjórnvalda vegna ummæla í viðtali við dagblaðið The Internartional Herald Tribune (IHT) sem birtist mánudaginn 17. júní þar sem hann segir það „afturhaldssemi“ að Frakkar vilji halda hljóð- og myndframleiðslu utan ...