Laugardagurinn 25. maí 2013

Madrid: Forsætis­ráðherrann býr sig undir að þiggja aðstoð ESB - deilt við Þjóðverja um aðferðafræði


6. júní 2012 klukkan 09:23
Mariano Rajoy

Forsætisráðherra Spánar leitar aðstoðar hjá öðrum ríkjum innan ESB og biður þau um að „hjálpa þjóð í vanda“ segir í franska blaðinu Le Figaro miðvikudaginn 6. júní. Spánn hafi ekki lengur aðgang að fjármálamörkuðum og ríkisstjórn landsins eigi allt undir velvilja annarra segir í blaðinu. Þetta blasi við þótt enn hafi ekki verið send opinber hjálparbeiðni frá Madrid, ríkisstjórnin geti ekki vikið sér undan þrýstingi markaðanna. Ráðamenn í Madrid og Berlín deila um leiðir til að endurfjármagna spænska banka.

Le Figaro segir að fjarfundur fulltrúa G7 ríkjanna hafi snúist um vanda Spánverja á sama tíma og Mariano Rajoy forsætisráðherra hafi stigið enn eitt skrefið í átt til beiðni um fjárhagslega aðstoð. Hann hafi á þingi Spánar snúið sér til annarra ESB-ríkja með tilmælum um „stuðning við þjóð í vanda“ og búið þingmenn undir stefnubreytingu af sinni hálfu. „Hið brýnasta fyrir okkur, mikilvægast af öllu er að leysa lausafjárvanda okkar og endurfjármögnun skulda,“ sagði forsætisráðherrann.

Rajoy hefur hvað eftir annað fullyrt að Spánverjar gætu leyst vanda sinn sjálfir, annað væri niðurlægjandi fyrir þá. Hann hefur barist fyrir því að Seðlabanki Evrópu tæki að sér að kaupa skuldabréf af Spánverjum. Bankinn hefur hins vegar haldið að sér höndum á þessu ári. Við það hefur lántökukostnaður spænska ríkisins hækkað í 6,23% á 10 ára bréfum á móti 1,20% fyrir Þjóðverja, skuldatryggingarálagið fyrir Spán nemur þannig 500 punktum. „Áhættuálagið sýnir að Spánverjar eiga ekki aðgang að mörkuðunum,“ viðurkennir Christobal Montoro, fjárlagaráðherra Spánar.

Spánverjar vilja ekki skipa hóp með Grikkjum, Portúgölum og Írum, smáþjóðum að þeirra mati enda er Spánn fjórða stærsta hagkerfi ESB. Af þessum ástæðum hafnar ríkisstjórn Spánar því að sæta sömu kjörum og þessar þjóðir vegna neyðaraðstoðar enda sé hún tilgangslaus vegna Spánar, hagkerfið sé einfaldlega of stórt. „Það kostar um 600 milljarða evra að veita Spáni þriggja ára skjól á fjármálamörkuðunum, ESB hefur einfaldlega ekki efni á því,“ segja embættismenn í Madrid. Alls ræður ESB yfir 750 milljörðum evra í neyðarsjóðum sínum.

Í stað þess að ríkissjóður Spánar og fjármál ríkisins verði sett undir eftirlit þríeykis á vegum Seðlabanka Evrópu, ESB og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sættir ríkisstjórn Spánar sig við að þiggja aðstoð sem er bundin við bankakerfið eitt, það er 100 milljarða evra. Fjármunirnir kæmu úr bráðabirgða-neyðarsjóði evrunnar (EFSF) sem ræður yfir 450 milljörðum evra og endurfjármagnaði banka með kaupum á skuldabréfum eins og gert var gagnvart Grikklandi í maí.

Deilt er um aðferðafræðina við að bjarga spænsku bönkunum. Um hana er ágreiningur milli æðstu ráðamanna í Madrid og Berlín.

Spánverjar vilja að um beina endurfjármögnun verði að ræða, hún fari hjáleið framhjá ríkissjóði Spánar til að ekki verði unnt að kenna hana við ríkisaðstoð og engin hætta verði á því að spænsk ríkisfjármál lúti eftirliti og íhlutun annarra eða bankakerfi landsins verði háð ákvörðunum ESB-embættismanna í Brussel.

Þjóðverjar hafna þessari leið. Þeir benda á að samþykktir neyðarlánasjóða ESB, bæði bráðabirgðasjóðsins (ESFS) og varanlega sjóðsins (ESM) banda beina endurfjármögnun banka. Óhjákvæmilegt sé að fara um ríkissjóð viðkomandi lands og fá ábyrgð hans.

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Víglund Þorsteinsson Pistill

Evruland er nýlenda Þýskalands

Nú þegar evran er að ná inn á á annan tuginn í vegferð sinni er margt að opinberast og raungerast með öðrum hætti en væntingar stóðu upphaflega til . Flest sem bendir nú til þess að hún muni ekki ná því að fylla tvo tugi og líði undir lok nú á næstu árum. Það dauðastríð mun ekki taka langa...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Ítalía: Beppe Grillo ætlar að knýja fram þjóðar­atkvæða­greiðslu um ESB og evruna

Beppe Grillo, leiðtogi 5-stjörnu-hreyfingarinnar á Ítalíu, sigurvegara kosninganna í febrúar 2013 ætlar að beita sér fyrir söfnun 500.000 undirskrifta til að knýja fram þjóðar­atkvæða­greiðslu á Ítalíu um ESB og evruna. Grillo sem er í stjórnar­andstöðu á ítalska þinginu ætlar að þvinga fram þjóðaratk...

Dansmærin Ruby breytir framburði sínum í máli sem tengist Berlusconi

Ruby, unga stúlkan frá Marokkó, sem er höfuðpersónan í málaferlum gegn Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætis­ráðherra Ítalíu, og félögum hans fyrir að hafa greitt fyrir kynlíf með henni sagði fyrir rétti í Mílanó föstudaginn 24. maí að hún hefði búið til sögur um svæsnar kvöldskemmtanir með „Cavali...

Kýpur sakar þríeykið um rangfærslur í skýrslu um peningaþvætti

Kýpversk stjórnvöld saka þríeykið, ESB/AGS/SE um að rangfæra upplýsngar um peingaþvætti í bönkum á Kýpur í nýrri skýrslu, sem sagt hefur verið frá hér á Evrópu­vaktinni. Þau segja að ályktanir, sem séu dregnar í skýrslunni séu tilefnislausar.

Barack Obama boðar nýja stefnu í baráttunni við hryðjuverkamenn - vill takmarka notkun dróna og þrengja vald CIA

Barack Obama Bandaríkja­forseti kynnti nýja stefnu í stríðinu gegn hryðjuverkum í ræðu sem hann flutti í National Defense University í Washington fimmtudaginm 23. maí. Þetta stríð gæti ekki staðið „að eilífu“, því yrði að ljúka en baráttan gegn hryðjuverkamönnum að halda áfram. Stefnan hefur verið...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS