Fjármálaráðherrar evru-ríkjanna krefjast þess af Spánverjum að þeir endurskipuleggi fjármálakerfi sitt í stað aðstoðar við spænska vandræðabanka sagði háttsettur embættismaður ESB við AFP-fréttastofuna síðdegis laugardaginn 9. júní. Fyrr um daginn efndu ráðherrarnir til fjarfundar um vandann á Spáni.
Fréttastofan spurði hvort ráðherrarnir 17 settu skilyrði fyrir aðstoð sinni við Spán. Embættismaðurinn svaraði: „Spænsku ríkisstjórninni verða sett skilyrði en þau snerta aðeins hreingerningu innan fjármálageirans.“
Fréttastofan ræddi við embættismanninn eftir fjarfund fjármálaráðherra evru-ríkjanna 17. Hann sagði að rætt hefði verið um allt að 100 milljarða evru aðstoð til spænskra vandræðabanka. „Fjárhæðin sem um er rætt á þessari stundu er allt að 100 milljörðum evra hins vegar hefur ekkert verið ákveðið í því efni,“ sagði embættismaðurinn.
Spænska ríkisstjórnin hefur lagt áherslu á að hún verði ekki látin sæta sömu kjörum og ríkisstjórnir Grikklands, Írlands og Póllands heldur verði fé beint til banka án þess að um íhlutun annarra í stjórn spænskra ríkisfjármála verði að ræða. Spænska ríkisstjórnin hefur ekki farið opinberlega fram á neina aðstoð.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn birti skýrslu föstudaginn 8. júní þar sem því er haldið fram að 40 milljarða evra þurfi til að tryggja spænskum bönkum nægt eigið fé. Í samtölum við embættismenn sjóðsins kom hins vegar fram að sögn AFP að miklu meira fé þyrfti inn í spænska bankakerfið til að mynda þar trúverðuga fyrirstöðu. Fitch matsfyrirtækið hefur nefnt töluna 100 milljarða evra.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.