Miðvikudagurinn 19. júní 2013

Seðlabankar um allan heim í startholum til að auka peningaflæði ef nauðsyn krefur


15. júní 2012 klukkan 09:09

Hlutabréfamarkaðir tóku mikinn kipp síðdegis í gær, þegar fréttir bárust um að seðlabankar víða um heim væru í startholunum að grípa inn ef staðan á mörkuðum þróaðist á versta veg eftir þingkosningarnar í Grikklandi á sunnudag. Embættismenn frá G-20 ríkjum (sem halda fund í Mexikó í næstu viku) staðfestu þetta við Reuters í gær. Talsmaður forsætisráðherra Kanada sagði í gær að Kanada væri tlbúið að grípa til aðgerða ef nauðsyn krefði. Seðlabanki Japan er í viðbragðsstöðu. Kínverjar og Indverjar sömuleiðis. Í Evrópu búa stjórnvöld sig undir aðgerðir í kjölfar grísku kosninganna ef þörf krefur. Aðgerðir seðlabankanna yrðu fólgnir í ráðstöfunum til að auka peningaflæði um kerfið.

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Víglund Þorsteinsson Pistill

Evruland er nýlenda Þýskalands

Nú þegar evran er að ná inn á á annan tuginn í vegferð sinni er margt að opinberast og raungerast með öðrum hætti en væntingar stóðu upphaflega til . Flest sem bendir nú til þess að hún muni ekki ná því að fylla tvo tugi og líði undir lok nú á næstu árum. Það dauðastríð mun ekki taka langa...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Einar K. Guðfinnsson, forseti alþingis, ræðir stöðu Íslendinga í sam­félagi þjóðanna í hátíðarræðu

Einar K. Guðfinnsson, forseti alþingis, flutti þjóðhátíðarræðu mánudaginn 17. júni í Búðardal. Hann vék meðal annars að stöðu Íslands og Íslendinga í sam­félagi þjóðanna og sagði: „Svo sannarlega erum við Evrópu­þjóð en það þýðir ekki að við viljum verða Evrópu­sambandsþjóð.“ Hér birtist kafli úr ræðu...

Viðskipta­viðræður ESB og BNA: Harka hlaupin í deilur milli Barrosos og Hollandes vegna fyrirvara um menningarmál

José Manuel Barroso, forseti framkvæmda­stjórnar ESB, sætir harðri gagnrýni franskra stjórnvalda vegna ummæla í viðtali við dagblaðið The Internartional Herald Tribune (IHT) sem birtist mánudaginn 17. júní þar sem hann segir það „afturhaldssemi“ að Frakkar vilji halda hljóð- og myndframleiðslu utan ...

Tvíhliða viðskipta­viðræður ESB og BNA formlega hafnar

David Cameron, forsætis­ráðherra Bretlands, kynnti mánudaginn 17. júní fyrir fund G8 ríkjanna á Norður-Írlandi áform um „stærsta tvíhliða viðskiptasaming í sögunni“ milli ESB og Bandaríkjanna. Barack Obama Bandaríkja­forseti sagði að fyrsta viðræðulota vegna samninganna yrði í Washington í júlí. Stef...

Finnland: Meirihluti andvígur aðild að Atlantshafsbandalaginu

Meirihluti Finna eða um 52% telur að Finnland eigi ekki að gerast aðili að Atlantshafsbandalaginu. Þetta hlutfall hækkaði í 59%, þegar spurt var um afstöðu til aðildar að NATÓ ef Svíar gerðust aðilar. Einungis 28% sögðust vilja feta í fótspor Svía. Sér­fræðingar segja að þessi könnun sýni að engin breyting hafi orðið á afstöðu Finna.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS