Föstudagurinn 24. maí 2013

Moody´s lækkar lánshæfismat hollenzkra og belgískra banka


15. júní 2012 klukkan 09:19

Moody´s hefur lækkað lánshæfismat hollenzkra og belgískra banka vegna stöðunnar á evrusvæðinu. Þar á meðal eru ING og ABN Amró. Langtímamat á ING, Rabobank, ABN, LeasePlan og KBC var lækkað um tvö stig og SNS um eitt. Moody´s segir að hollenzkir bankar standi frammi fyrir erfiðri stöðu á þessu ári og hugsanlega lengur. Fyrirtækið segir einnig að hollenzka ríkið verði fyrir neikvæðum áhrifum vegna erfiðleika evrusvæðisins og svæðisbundinna veikleika og bendir jafnframt á lækkandi fasteignaverð í Hollandi.

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Styrmi Gunnarsson Pistill

Olíuvinnsla við Ísland (II): Þjónusta við orkuþríhyrning norður af Íslandi opnar ný tækifæri

Í BA-ritgerð í hagfræði, sem Hildur Sturlu­dóttir skrifaði við Háskóla Íslands og birt var í febrúar á þessu ári er ferlinu við hugsanlega olíuvinnslu lýst með eftirfarandi hætti: "Fyrsta stigið kallast frumathugunarstig.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kýpur sakar þríeykið um rangfærslur í skýrslu um peningaþvætti

Kýpversk stjórnvöld saka þríeykið, ESB/AGS/SE um að rangfæra upplýsngar um peingaþvætti í bönkum á Kýpur í nýrri skýrslu, sem sagt hefur verið frá hér á Evrópu­vaktinni. Þau segja að ályktanir, sem séu dregnar í skýrslunni séu tilefnislausar.

Barack Obama boðar nýja stefnu í baráttunni við hryðjuverkamenn - vill takmarka notkun dróna og þrengja vald CIA

Barack Obama Bandaríkja­forseti kynnti nýja stefnu í stríðinu gegn hryðjuverkum í ræðu sem hann flutti í National Defense University í Washington fimmtudaginm 23. maí. Þetta stríð gæti ekki staðið „að eilífu“, því yrði að ljúka en baráttan gegn hryðjuverkamönnum að halda áfram. Stefnan hefur verið...

Grikkland: 70 bílar til afnota fyrir stjórnmálamenn

Gríska ríkis­stjórnin hefur lagt fyrir gríska þingið upplýsingar um svo­nefnda „kurteisisbíla“ í eigu hins opinbera. Þessar upplýsingar eru lagðar fram vegna þrýstings frá þríeykinu um niðurskurð úgjalda og gagnsæi. Gríska ríkið á 153 bíla af þessu tagi. 70 þeirra eru til afnota fyrir stjórnmálamenn.

Þýzkaland: Aukin einkaneyzla tryggði örlítinn hagvöxt

Hagvöxtur í Þýzkalandi á fyrsta fjórðungi þessa árs var nánast enginn eða um 0,1% að því er fram kemur á BBC. Samdráttur varð í útflutningi og fjárfestingum en einkaneyzla jókst. Á síðasta fjórðungi síðasta árs varð samdráttur um 0,7%. Talið er að efnahagslægð sé gengin í garð, þgar samdráttur verðu...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS