Þriðjudagurinn 21. maí 2013

Vaxta­svindlið í Bretlandi: Skaðlegasta blekkingariðja í nútímasögu, segir breskur þingmaður


30. júní 2012 klukkan 19:29

Sjálfstæðum sérfræðingi á vegum ríkisstjórnarinnar verður falið að rannsaka starfshætti innan breska bankakerfisins eftir að upplýst var um vaxtasvindl hjá Barclays og fleiri stórum bönkum. Þess er vænst að hann ljúki störfum í haust og skili skýrslu ásamt tillögum um hvernig standa beri að því að ákvarða millibankavexti. Hugsanlegt er að Englandsbanka, breska seðlabankanum, verði falið það hlutverk eða regluverði í City of London.

Bob Diamond

Breska bankasambandið (BBA) hefur hafið eigin tillögugerð um framtíð Libor (millibankavaxta-kerfisins) og var þess vænst að niðurstaða verði kynnt fyrir lok júlí. Eftir að ríkisstjórnin tók málið í sínar hendur með ákvörðun um að skipa sjálfstæðan sérfræðing til að smíða nýjar tillögur að lokinni rannsókn sinni er óljóst hvernig BBA tekur á máum.

Bob Diamond, forstjóri Barclays, hefur verið kallaður fyrir fjárlaganefnd breska þingsins miðvikudaginn 4. júlí. Forstjórinn heldur fast í stöðu sína þrátt fyrir þunga gagnrýni á hann og bankann fyrir að hagræða millibankavöxtum í því skyni að bæta hag bankans.

Hluthafar í Barclays hafa krafist sjálfstæðrar rannsóknar innan bankans eftir að breska fjármálaeftirlitið (FSA) sektaði hann um 290 milljónir punda fyrir að ákvarða vexti með svindli.

Andrew Tyrie, formaður fjárlagarnefndar þingsins, sagði að vaxtasvindlið væri „skaðlegasta blekkingariðja“ í nútímasögu og það hefði enn spillt áliti manna á fjármálaþjónustu í Bretlandi. Hann sagði:

„Enn hefur verið dregið úr trausti almennings á bönkunum. Menn verða þegar í stað að hefja aðgerðir til að auka þá í áliti. Þingið og þjóðin verða að fá upplýsingar um hvað fór úr skorðum og hvort skemmdarvargarnir hafa verið látnir víkja. Við verðum einnig að fá staðfestingu á því að teknir hafi verið upp nýir siðir.“

Stephen Hester, forstjóri Royal Bank of Scotland (RBS), hefur tilkynnt að hann afsali sér 2 milljóna punda bónus sínum í ár vegna tölvumistaka innan bankans sem olli vandræðum fyrir milljónir viðskiptavina hans.

Hester hefur staðfest að RBS hafi verið dregið inn í rannsóknina vegna Libor vaxtablekkingarleiksins hjá Barclays. Hann sagði í viðtali við BBC að kvöldi föstudags 29. júní að bankastarfsemi „hefði næstum slitnað úr tengslum við þjóðlífið“ og að endurskoða þurfi „bankakúlturinn“ frá grunni. Hester hefur verið forstjóri RBS í þrjú og hálft ár.

„Sumir héldu að þeir væru herrar alheimsins þegar þeír áttu að vera þjónar viðskiptavinanna,“ sagði Hester og bætti við:

„Þessi mál eru lýsandi fyrir hve kúltúrinn innan bankanna spilltist fyrir fjármálakreppun, ég kom úr annarri grein inn í bankaheiminn fyrir þremur og hálfu ári, hlutverk mitt var að breyta RBS til hins betra, rekstrarlega og að því er kúlturinn varðar.“

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Styrmi Gunnarsson Pistill

Olíuvinnsla við Ísland (II): Þjónusta við orkuþríhyrning norður af Íslandi opnar ný tækifæri

Í BA-ritgerð í hagfræði, sem Hildur Sturlu­dóttir skrifaði við Háskóla Íslands og birt var í febrúar á þessu ári er ferlinu við hugsanlega olíuvinnslu lýst með eftirfarandi hætti: "Fyrsta stigið kallast frumathugunarstig.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Finnland: Verður rússneska opinbert tungumál minnihluta

Nú eru um 62 þúsund rússneskumælandi í Finnlandi en gert er ráð fyrir að þeir verði orðnir um 240 þúsund árið 2050. Þetta þýðir að á 40 árum verða rússneskumælandi Finnar jafnmargir og sænskumælandi Finnar eru í dag. Fjöldi rússneskumælandi Finna hefur tvöfaldast á einum áratug. Hér er átt við fólk,...

ESB: Frakkar verða að breyta um stefnu eða sæta refsiaðgerðum ella segir fulltrúi Þýzkalands

Fulltrúi Þýzkalands í framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins, Guenther Oettinger, sagði í gær að Frakkar yrðu að koma fram umbótum á lífeyriskerfi sínu og frelsisvæða vinnu­markað sinn eða horfast í augu við refsiaðgerðir af hálfu ESB. Í síðustu viku veitti ESB Frakklandi tveggja ára frest til að koma fj...

Spiegel: Það er að verða til „týnd kynslóð“ í Evrópu -Atvinnuleysi ungs fólks „koss dauðans“ fyrir evruna?

Þýzka timaritið Der Spiegel segir að það sé að verða til „týnd kynslóð“ í Evrópu. Hin pólitíska elíta á meginlandinu hafi frekar viljað standa í gömlu hugmyndafræðilegu stríði en snúa sér að því verki að koma upp árangursríkri menntun og þjálfun, sem geri ungu fólki í Suður-Evrópu kleift að finna vinnu við sitt hæfi.

Hæðst að skriffinnum ESB vegna ólívuolíunnar - sagt minna á bannið við bognum agúrkum

Ákvörðun nefndar á vegum framkvæmda­stjórnar ESB um að frá 1. janúar 2014 skuli ólívuolía borin fram í lokuðum flöskum á borð veitingastaða þykir mörgum hin undarlegasta frá því að lagt var bann við bognum agúrkum sá sínum tíma segir í The Guardian mánudaginn 20. maí. Blaðið segir að hæðst sé að sk...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS