Laugardagurinn 25. maí 2013

Cameron tilbúinn í þjóðar­atkvæða­greiðslu um ESB á „réttum tíma“


1. júlí 2012 klukkan 09:57
David Cameron

David Cameron, forsætisráðherra Breta segir í grein í Sunday Telegraph í dag, að hann sé tilbúinn til að samþykkja þjóðaratkvæðagreiðslu í Bretlandi um tengsl Breta við Evrópusambandið en hefur þann fyrirvara á, að velja verði rétta tímann. Sá tímapunktur sé ekki nú. Eins og fram hefur komið hér á Evrópuvaktinni hafa nær hundrað þingmenn Íhaldsflokksins sent ráðherranum bréf og krafizt slíkrar atkvæðagreiðslu. Talsmenn Frjálslyndra segja, að greinin snúist um innanflokksmál íhaldsmanna.

William Hague, utanríkisráðherra og fyrrum leiðtogi Íhaldsflokksins tók undir með Cameron í BBC og skýrði hvað átt væri við með réttum tíma. Sú stund rynni upp, þegar betur væri ljóst í hvaða átt ESB stefndi. Cameron lýsir í grein sinni andstöðu við úrsögn Breta úr ESB.

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Ritað undir frí­verslunarsamning Kína og Sviss

Ritað hefur verið undr frí­verslunarsamning Kína og Sviss og segir BBC að hann kunni að verða „first such deal with a major Western economy“, fyrsti slíkur samningur Kína við öflugt vestrænt efnahagsríki.

Ítalía: Beppe Grillo ætlar að knýja fram þjóðar­atkvæða­greiðslu um ESB og evruna

Beppe Grillo, leiðtogi 5-stjörnu-hreyfingarinnar á Ítalíu, sigurvegara kosninganna í febrúar 2013 ætlar að beita sér fyrir söfnun 500.000 undirskrifta til að knýja fram þjóðar­atkvæða­greiðslu á Ítalíu um ESB og evruna. Grillo sem er í stjórnar­andstöðu á ítalska þinginu ætlar að þvinga fram þjóðaratk...

Dansmærin Ruby breytir framburði sínum í máli sem tengist Berlusconi

Ruby, unga stúlkan frá Marokkó, sem er höfuðpersónan í málaferlum gegn Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætis­ráðherra Ítalíu, og félögum hans fyrir að hafa greitt fyrir kynlíf með henni sagði fyrir rétti í Mílanó föstudaginn 24. maí að hún hefði búið til sögur um svæsnar kvöldskemmtanir með „Cavali...

Kýpur sakar þríeykið um rangfærslur í skýrslu um peningaþvætti

Kýpversk stjórnvöld saka þríeykið, ESB/AGS/SE um að rangfæra upplýsngar um peingaþvætti í bönkum á Kýpur í nýrri skýrslu, sem sagt hefur verið frá hér á Evrópu­vaktinni. Þau segja að ályktanir, sem séu dregnar í skýrslunni séu tilefnislausar.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS