
Charlotte Chabas, blaðakona á Le Monde, skrifar um úrslit forsetakosninganna á Íslandi á vefsíðu blaðsins sunnudaginn 1. júlí. Hún segir að þótt forsetakosningabaráttan hafi vakið deilur verði ekki deilt um úrslitin. Ólafur Ragnar Grímsson hafi verið endurkjörinn með afgerandi stuðningi 52,5% þeirra sem greiddu atkvæði. Hann hafi setið í embættinu í 16 ár og hefji nú 69 ára að aldri fimmta kjörtímabil sitt – það sé einsdæmi á þessari litlu eyju með 320.000 íbúa. Þá segir:
„Langt fyrir aftan hin gamalreynda stjórnmálamann er fréttakonan Þóra Arnórsdóttir, um tíma naut hún meira fylgis samkvæmt könnunum, með 33,2% atkvæða. Hinir fjórir frambjóðendurnir, þar á meðal formaður hreyfingar og jarðfræðingur, skipta með sér um 12% atkvæða.
Niðurstaða kosninganna er þó einstæð í landi þar sem venjan er að enginn bjóði sig fram gegn sitjandi forseta óski hann endurkjörs. Með því að tryggja sér um þriðjung atkvæða sýnir Þóra (á Íslandi er venjan að nota fornafnið) „breikkandi gjá sem myndast hefur í íslensku þjóðfélagi milli almennings og menntamannaelítunnar“ segir Rósa Erlingsdóttir, kennari í stjórnmálafræðum við háskóla í Reykjavík.
Forsetinn fráfarandi sætti um tíma ámæli fyrir hlut sinn að efnahagskreppunni 2008 en honum hefur í raun tekist að ávinna sér stig af stigi traust hluta íslensku þjóðarinnar. Þótt hann hafi lengi barist á vinstri væng stjórnmálanna hefur Ólafur að þessu sinni getað treyst á fylgi kjósenda til hægri, þar hefur skipt miklu að hann er andstæður aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Pólitískir hæfileikar hans hafa einnig gert honum kleift að ná til almennings með því að skapa sér „stöðu sjálfstæðs og sterks einstaklings sem veitir kjósendum öryggi á tímum óvissu“ segir Þóroddur Bjarnason, kennari í félagsfræði við háskóla í Reykjavík. Þar ber að nefna að árið 2010 skipaði hann sér í andstöðu við þingið í Icesave-málinu sem rekja mátti til gjaldþrots íslensks banka, Landsbankans. Ólafur hefur með afstöðu sinni kallað fram tvær þjóðaratkvæðagreiðslur, þar sem Íslendingar létu verulega að sér kveða.
Þrátt fyrir vinsældir sínar tókst Þóru, sem varð að gera nokkurra vikna hlé á kosningabaráttu sinni vegna þess að hún ól dóttur, þriðja barn sitt, aldrei að koma til skila „breytingunni“ sem hún sagði helsta baráttumál sitt. Laugardagskvöldið viðurkenndi hún ósigur sinni á fundi með stuðningsmönnum sínum en sagðist vera „ánægð með þetta einstæða fylgi og allan þann stuðning sem hún hefði fengið í baráttunni“.
Hún sem vildi verða „ópólitískur“ forseti nýtti sé stöðu sína sem kona og ung móðir til að glíma við þá sem höfðu kallað fram efasemdir um að þeir gætu stjórnað landinu. „Ég vil róa hina áhyggjufullu sem kalla á höfnun, unga dóttir mín dafnar frábærlega, hún er raunar stærsta ungabarn sem ég hef nokkru sinni séð,“ segir unga konan brosandi. Þóra notaði raunar tækifærið til að segja frá nafni dóttur sinnar sem fram til þessa hafði aðeins borið eftirnafn eins og venja er með nýfædd börn á Íslandi.“
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Ritað undir fríverslunarsamning Kína og Sviss
Ritað hefur verið undr fríverslunarsamning Kína og Sviss og segir BBC að hann kunni að verða „first such deal with a major Western economy“, fyrsti slíkur samningur Kína við öflugt vestrænt efnahagsríki.
Ítalía: Beppe Grillo ætlar að knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB og evruna
Beppe Grillo, leiðtogi 5-stjörnu-hreyfingarinnar á Ítalíu, sigurvegara kosninganna í febrúar 2013 ætlar að beita sér fyrir söfnun 500.000 undirskrifta til að knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslu á Ítalíu um ESB og evruna. Grillo sem er í stjórnarandstöðu á ítalska þinginu ætlar að þvinga fram þjóðaratk...
Dansmærin Ruby breytir framburði sínum í máli sem tengist Berlusconi
Ruby, unga stúlkan frá Marokkó, sem er höfuðpersónan í málaferlum gegn Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, og félögum hans fyrir að hafa greitt fyrir kynlíf með henni sagði fyrir rétti í Mílanó föstudaginn 24. maí að hún hefði búið til sögur um svæsnar kvöldskemmtanir með „Cavali...
Kýpur sakar þríeykið um rangfærslur í skýrslu um peningaþvætti
Kýpversk stjórnvöld saka þríeykið, ESB/AGS/SE um að rangfæra upplýsngar um peingaþvætti í bönkum á Kýpur í nýrri skýrslu, sem sagt hefur verið frá hér á Evrópuvaktinni. Þau segja að ályktanir, sem séu dregnar í skýrslunni séu tilefnislausar.