Fimmtudagurinn 23. maí 2013

Stjórnar­formaður Barclays boðar afsögn - for­stjórinn situr sem fastast


1. júlí 2012 klukkan 22:19

Marcus Agius, stjórnarformaður Barclays banka, ætlar að segja af sér í því skyni að draga úr þrýstingi á Bob Diamond, forstjóra bankans. Þess er krafist að hann víki vegna vaxtasvindls bankans. Talið er að afsögnin verði kynnt mánudaginn 2. júlí og taki gildi þegar eftirmaður hefur verið valinn en fjármálaeftirlitið verður að samþykkja val hans.

Marcus Agius

Bob Diamond, forstjóri Barclays, mun sitja fyrir svörum hjá fjárlaganefnd breska þingsins miðvikudaginn 4. júlí. Talið er að þingmenn óski eftir að Agius sitji fundinn þótt hann hafi sagt af sér.

Þingmenn telja ekki nóg að gert með því að Agius segi af sér en Diamond sitji áfram. Oakeshott lávaraður, forystumaður í hópi frjálslyndra sagði sunnudaginn 1. júlí: „Marcus Agius hættir og Bob Diamond heldur áfram, það breytir engu um hneykslið. Diamond er við stýrið og Agius farþegi í umferðarslysi Barclays,“ sagði hann.

Hluthafar Barclays eru ekki sömu skoðunar og stjórnmálamennirnir um að Diamond eigi að hætta á þessari stundu þar sem enginn augljós arftaki er í augsýn og fjárfestar eru almennt sáttir við þá stefnu sem hann fylgir. Hluthafarnar eru hins vegar ekki eins sáttir við Agius. Má rekja þau vandræði til ársins 2008 þegar bankinn sneri sér til fjárfesta í Mið-Austurlöndum til að auka eigið fé sitt en sætti síðan gagnrýni þegar allt fór í háa lofr vegna 17 milljóna punda launum Diamonds í maí.

Í ljós kom að bankinn átti samstarf við aðra banka um að skrá millibankavexti (Libor) bankanum í hag. Fjármálaeftirlitið í London sektaði bankann um 59,9 milljón pund en bandaríska dómsmálaráðuneytið lagði á hann 230 milljón punda sekt.

Þar til nú um þessa helgi taldi stjórn Barclays að hún hefði gripið til nægra aðgerða eftir að upplýst var um sektina. Diamond afsalaði sér eigin bónus árið 2012 og sömu sögu er að segja um nánustu samstarfsmenn hans. Hlutahafar vilja að litið sé til skila á bónusum fyrri ára og hafa áhyggjur af áhrifum pólitískrar íhlutunar. Hún hefur þegar lækkað verð bankans um 4 milljarða punda á aðeins 72 stundum.

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Styrmi Gunnarsson Pistill

Olíuvinnsla við Ísland (II): Þjónusta við orkuþríhyrning norður af Íslandi opnar ný tækifæri

Í BA-ritgerð í hagfræði, sem Hildur Sturlu­dóttir skrifaði við Háskóla Íslands og birt var í febrúar á þessu ári er ferlinu við hugsanlega olíuvinnslu lýst með eftirfarandi hætti: "Fyrsta stigið kallast frumathugunarstig.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Stokkhólmur: Kveikt í bílum-íkveikjur í níu borgarhverfum-vandamál tengd innflytjendum

Í gærkvöldi og í morgun var kveikt í bílum í Stokkhólmi og ólæti breddust út til margra hverfa borgarinnar að því er fram kemur í Financial Times, sem segir að þetta hafi gerzt þrjá daga í röð. Lög­reglan í Stokkhólmi hefur handtekið einhverja og segir stöðuna flókna vegna fjölda hverfa en bendir á, að staðan sé rólegri í Husby, hverfi, þar sem margi innflytjendur eru saman komnir.

Ítalía: Milljónir hafa ekki efni á að hita heimili sín eða borða kjöt

Milljónir Ítala hafa ekki efni á að hita upp heimili sín eða borða kjöt segir í nýrri skýrslu frá hagstofu Ítalíu, ISTAT. Efnahagslægð, sem staðið hefur í tvö ár hefur komið þungt niður á almennum borgurum, sem ganga meira og meira á sparnað sinn. Fjöldi þess fólks sem stendur svo höllum fæti, sem h...

Ný ríkis­stjórn gerir hlé á aðildarviðræðum- nýjar viðræður ekki án þjóðar­atkvæða­greiðslu

Af fréttum Morgunblaðsins í dag má ráða að ný ríkis­stjórn muni gera hlé á aðildarviðræðum Íslands við Evrópu­sambandið og að þær verði ekki teknar upp að nýju nema að undangenginni þjóðar­atkvæða­greiðslu. Samkvæmt heimildum Evrópu­vaktarinnar verður gerð úttekt á stöðu viðræðnanna eins og þær standa nú og stöðu mála innan Evrópu­sambandsins.

Þrír fyrrverandi framkvæmda­stjórar Saab handteknir - grunaðir um skattsvik

Þrír fyrrverandi framkvæmda­stjórar Saab-bílasmiðjunnar í Svíþjóð hafa verið handteknir í Svíþjóð vegna gruns um bókhaldsbrot. Olof Sahlgren saksóknari telur að þremenningarnir hafi gerst sekir um alvarlegar tilraunir til að skjóta sér undan skattayfirvöldum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS