Ráðgjafarfyrirtækið Capital Economics í Bretlandi hefur fengið stórfé í verðlaun fyrir að semja bestu útgönguleiðina af evru-svæðinu. Um er að ræða verðlaunin Wolfson Economics Prize og nema þau 250.000 pundum (um 50 m. ISK). Verðlaunatillagan snýr að því hvernig best sé fyrir ríki, eitt eða fleiri, að segja skilið við evruna á „skipulegan hátt“.
Í tilkynningu um verðlaunin segir að tillagan geri ráð fyrir að sumir muni tapa og aðrir hagnist á því að eitt eða fleiri ríki slíti evru-samstarfinu . Lokaniðurstaðan verði jákvæð fyrir þá sem eftir séu á svæðinu, hagvöxtur og velsæld aukist þar og almennt í heiminum.
Roger Bootle hafði forystu fyrir teymi innan Capital Economics við gerð skýrslu sem ber heitið: Sagt skilið við evruna. Raunhæfar leiðbeiningar. Tekið er mið af ríkjum sem standa höllum fæti innan evru-svæðisins eins og Grikklandi.
Í tillögunni er gert ráð fyrir því að útgönguríkið verði að taka upp nýja mynt strax á fyrsta degi brottfarar og skrá hana til jafns við evruna. Laun, verðlag, lán, innlán yrðu skráð í nýrri mynt á þeim grunni.
Leyft yrði að nota evru-seðla og mynt í sex mánuði til að greiða fyrir smáviðskiptum. Útgönguríkið setti sér ný verðbólgumarkmið og gætti strangs aðhalds í ríkisfjármálum undir eftirliti sjálfstæðra sérfræðinga.
Ríkisskuldir yrðu einnig skráðar að nýju í nýju myntinni og ríkið leitaði eftir nýjum samningum um greiðslu skulda sinna. Það mundi „líklega“ hafa í för með sér töluverðar afskriftir skulda að mati Capital Economics.
Ráðgjafarnir leggja einnig til að embættismenn útgönguríkisins efni til leynifunda áður en sagt er frá brottfarardeginum. Öðrum evru-ríkjum og alþjóðlegum fjármálastofnunum verði greint frá útgöngunni með þriggja daga fyrirvara, helst á föstudegi til að nýta megi helgi til undirbúnings.
Capital Economics segir að óhjákvæmilegt sé að loka heimabönkum og fjármálamörkuðum strax eftir tilkynninguna til að koma í veg fyrir fjármagnsflótta.
Lord Wolfson of Aspley Guise, einnig þekktur sem Simon Wolfson, forstjóri fatafyrirtækisins Next og fjárhagslegur bakhjarl Íhaldsflokksins, fjármagnar verðlaunin. Þau eru önnur hæstu peningaverðlaun til hagfræðings á eftir Nóbelsverðlaununum í hagfræði.
Evruland er nýlenda Þýskalands
Nú þegar evran er að ná inn á á annan tuginn í vegferð sinni er margt að opinberast og raungerast með öðrum hætti en væntingar stóðu upphaflega til . Flest sem bendir nú til þess að hún muni ekki ná því að fylla tvo tugi og líði undir lok nú á næstu árum. Það dauðastríð mun ekki taka langa...
Fyrrverandi menntamálaráðherra Grikklands, Anna Diamantopoulo, sem er úr PASOK, flokki sósíalista, sem stjórnaði Grikklandi í upphafi grísku kreppunnar, lýsti í gær yfir áformum um að stofna nýjan flokk. Hún sagði í viðtali við gríska ríkissjónvarpið að flokkur sósíalista væri kominn að leiðarlokum. "
Forseti Írlands: ESB endurspeglar ekki beztu hagsmuni fólksins í Evrópu
Michael D Higgins, forseti Írlands sagði í gær á alþjólegri ráðstefnu háskóla í Evrópu, sem haldin er í Háskóla Írlands (NUI Galway), að Evrópusambandið endurspegli ekki beztu hagsmuni fólksins í Evrópu. Hann gagnrýndi ESB fyrir að hafa of litla trú á vitsmunalegum hefðum (intellectual tradition) Evrópu.
Franskur dómstóll: Lagarde skal ekki hafa stöðu grunaðs manns
Franskur dómstóll hefur komist að þeirri niðurstöðu, að Christine Lagarde, forstjóri AGS og fyrrum fjármálaráðherra Frakklands skuli ekki hafa stöðu grunaðs manns í hneykslismáli, sem varðar 400 milljón evra mútugreiðslur til stuðningsmann Nicholas Sarkozy, fyrrum forseta Frakklands. Þetta kemur fram í Financial Times.
Stokkhólmur: Ástandið að róast en samt kveikt í bílum í gærkvöldi
Það var heldur rólegra ástand í úthverfum Stokkhólms í gærkvöldi, föstudagskvöld, lögreglan fékk liðstyrk frá Malmö og Gautaborg, sem virðist hafa dugað að verulegu leyti. Þó var kveikt í tveimur bílum. Og ríkisstjórnin hélt neyðarfund. Í Orebro í miðhluta Svíþjóðar kveiktu 25 grímuklædd ungmenni í þremur bílum, kveiktu í skóla og reyndu að bera eld að lögreglustöð.