Antonis Samaras, hinn nýi forsætisráðherra Grikklands mun í kvöld flytja stefnuræðu ríkisstjórnar sinnar í gríska þinginu. Hann átti í gær fund með fulltrúum þríeykisins í Aþenu. Ekathimerini segir, að Samaras muni kynna djarfar einkavæðingaraðgerðir, um niðurfellingu ríkisstofnana og sameiningu þeirra. Hins vegar muni hann hafna uppsögn opinberra starfsmanna en boða að þeir verði færðir til í störfum þangað, sem skortur sé á mannafla. Í kjölfarið talar Yannis Stouarnas, fjármálaráðherra og síðan verða þriggja daga umræður fram á sunnudagskvöld.
Á mánudag fer Stouarnas á fund Evruhópsins í Brussel. Í öðrum fréttum kemur fram, að hin nýja ríkisstjórn hafi fallið frá því í bili að óska eftir tilslökun á lánaskilmálum Grikkja heldur muni hún leggja áherzlu á að láta verkin tala fyrst.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Ástralía: Fékk höfuðhögg tók að tala ensku með frönskum hreim
Áströlsk kona tók að tala ensku með frönskum hreim eftir að hún vaknaði eftir umferðarslys þar sem hún hlaut höfuðhögg. Um er að ræða sjaldgæft heilkenni sem um 60 manns hafa greinst með á 100 árum segir í blaðinu Le Figaro. Leanne Rowe hefur aldrei farið til Frakklands og á enga franska vini.
Grikkland: Leiðtogar stjórnarflokka funda síðdegis um ERT
Leiðtogar stjórnarflokkanna þriggja á Grikklandi koma saman til fundar síðdegis í dag til þess að reyna að ná samkomulagi um örlög og framtíð gríska ríkisútvarpsins-sjónvarps. Samkvæmt úrskurði stjórnlagadómstóls Grikklands sl. mánudag hafði ríkisstjórnin leyfi til að loka ERT en ekki að slökkva á útsendingu. Stjórnarflokkarnir hver um sig túlka þessa niðurstöðu eins og þeim hentar.
NSA og FBI hafa hindrað rúmlega 50 tilraunir til hryðjuverka síðan 11. september 2001
Þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna (NSA) og Alríkislögregla Bandaríkjanna (FBI) hafa að eigin sögn komið í veg fyrir að minnsta kosti 50 tilraunir til hryðjuverka frá 11. september 2011. Google-fyrirtækið hefur óskað eftir að fá að birta hvernig þátttöku þess í verkefnum gegn hryðjuverkum hefur veri...
Forseti Kýpur fer fram á allsherjar endurskoðun björgunaraðgerða
Nikos Anastasiades, forseti Kýpur hefur skrifað leiðtogum evrusvæðisins bréf og farið fram á allsherjar endurskoðun á þeim skilmálum, sem Kýpur tók á sig vegna björgunarláns að upphæð 10 milljarðar evra. Í bréfinu segir forsetinn að Kýpur geti ekki uppfyllt þessa skilmála vegna þess að aðgerðirnar hafi skaðað efnahag landsins og bankakerfið meira en búizt var við.