Þriðjudagurinn 18. júní 2013

Juncker áfram formaður evru-ráðherraráðsins


10. júlí 2012 klukkan 10:21
Jean-Claude Juncker

Jean-Claude Juncker, forsætisráðherra Lúxemborgar, hefur samþykkt að sitja áfram sem formaður ráðherraráðs evru-ríkjanna. Kjörtímabili hans átti að ljúka 17. júlí en evru-ráðherrarnir samþykktu á níu klukkstunda fundi síðdegis mánudaginn 9. júlí að hann gegndi formennskunni enn að minnsta kosti til áramóta en ef til vill í allt að tvö og hálft ár.

Juncker vildi hætta, sagði að formennskan tæki fjórar vinnustundir á dag og hann vildi eiga þann tíma fyrir sjálfan sig auk þess sem hann þyrfti að hugsa um eigin heilsu.

Ágreiningur reis um eftirmann Junckers þegar franska ríkisstjórnin neitaði að samþykkja Wolfgang Schäuble, fjármálaráðherra Þýskalands.

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Einar K. Guðfinnsson, forseti alþingis, ræðir stöðu Íslendinga í sam­félagi þjóðanna í hátíðarræðu

Einar K. Guðfinnsson, forseti alþingis, flutti þjóðhátíðarræðu mánudaginn 17. júni í Búðardal. Hann vék meðal annars að stöðu Íslands og Íslendinga í sam­félagi þjóðanna og sagði: „Svo sannarlega erum við Evrópu­þjóð en það þýðir ekki að við viljum verða Evrópu­sambandsþjóð.“ Hér birtist kafli úr ræðu...

Viðskipta­viðræður ESB og BNA: Harka hlaupin í deilur milli Barrosos og Hollandes vegna fyrirvara um menningarmál

José Manuel Barroso, forseti framkvæmda­stjórnar ESB, sætir harðri gagnrýni franskra stjórnvalda vegna ummæla í viðtali við dagblaðið The Internartional Herald Tribune (IHT) sem birtist mánudaginn 17. júní þar sem hann segir það „afturhaldssemi“ að Frakkar vilji halda hljóð- og myndframleiðslu utan ...

Tvíhliða viðskipta­viðræður ESB og BNA formlega hafnar

David Cameron, forsætis­ráðherra Bretlands, kynnti mánudaginn 17. júní fyrir fund G8 ríkjanna á Norður-Írlandi áform um „stærsta tvíhliða viðskiptasaming í sögunni“ milli ESB og Bandaríkjanna. Barack Obama Bandaríkja­forseti sagði að fyrsta viðræðulota vegna samninganna yrði í Washington í júlí. Stef...

Finnland: Meirihluti andvígur aðild að Atlantshafsbandalaginu

Meirihluti Finna eða um 52% telur að Finnland eigi ekki að gerast aðili að Atlantshafsbandalaginu. Þetta hlutfall hækkaði í 59%, þegar spurt var um afstöðu til aðildar að NATÓ ef Svíar gerðust aðilar. Einungis 28% sögðust vilja feta í fótspor Svía. Sér­fræðingar segja að þessi könnun sýni að engin breyting hafi orðið á afstöðu Finna.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS