Markaðir í Asíu féllu óvænt í nótt eftir að Seðlabanki Suður-Kóreu lækkaði öllum að óvörum stýrivexti sína úr 3,25% í 3%. BBC segir að þessi ákvörðun hafi valdið ótta um að efnahagshorfur færu versnandi. Þá olli það vonbrigðum á mörkuðum að Seðlabanki Japans gerði litlar breytingar á stefnu sinni í peningamálum.
Hlutabréfavísitalan í Japan lækkaði um 1,5%, Hang Seng í Hong Kong lækkaði um meira en 2% og markaðurinn í Sydney lækkaði um 0,7%.
Stýrivextir í Japan eru á milli 0,0% og 0,1%.
Áður hafði Seðlabanki Kína lækkað stýrivexti sína.
Evruland er nýlenda Þýskalands
Nú þegar evran er að ná inn á á annan tuginn í vegferð sinni er margt að opinberast og raungerast með öðrum hætti en væntingar stóðu upphaflega til . Flest sem bendir nú til þess að hún muni ekki ná því að fylla tvo tugi og líði undir lok nú á næstu árum. Það dauðastríð mun ekki taka langa...
Ástralía: Fékk höfuðhögg tók að tala ensku með frönskum hreim
Áströlsk kona tók að tala ensku með frönskum hreim eftir að hún vaknaði eftir umferðarslys þar sem hún hlaut höfuðhögg. Um er að ræða sjaldgæft heilkenni sem um 60 manns hafa greinst með á 100 árum segir í blaðinu Le Figaro. Leanne Rowe hefur aldrei farið til Frakklands og á enga franska vini.
Grikkland: Leiðtogar stjórnarflokka funda síðdegis um ERT
Leiðtogar stjórnarflokkanna þriggja á Grikklandi koma saman til fundar síðdegis í dag til þess að reyna að ná samkomulagi um örlög og framtíð gríska ríkisútvarpsins-sjónvarps. Samkvæmt úrskurði stjórnlagadómstóls Grikklands sl. mánudag hafði ríkisstjórnin leyfi til að loka ERT en ekki að slökkva á útsendingu. Stjórnarflokkarnir hver um sig túlka þessa niðurstöðu eins og þeim hentar.
NSA og FBI hafa hindrað rúmlega 50 tilraunir til hryðjuverka síðan 11. september 2001
Þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna (NSA) og Alríkislögregla Bandaríkjanna (FBI) hafa að eigin sögn komið í veg fyrir að minnsta kosti 50 tilraunir til hryðjuverka frá 11. september 2011. Google-fyrirtækið hefur óskað eftir að fá að birta hvernig þátttöku þess í verkefnum gegn hryðjuverkum hefur veri...
Forseti Kýpur fer fram á allsherjar endurskoðun björgunaraðgerða
Nikos Anastasiades, forseti Kýpur hefur skrifað leiðtogum evrusvæðisins bréf og farið fram á allsherjar endurskoðun á þeim skilmálum, sem Kýpur tók á sig vegna björgunarláns að upphæð 10 milljarðar evra. Í bréfinu segir forsetinn að Kýpur geti ekki uppfyllt þessa skilmála vegna þess að aðgerðirnar hafi skaðað efnahag landsins og bankakerfið meira en búizt var við.