Laugardagurinn 25. maí 2013

Liborhneykslið breiðist út til Bandaríkjanna-þing­nefndir hefjast handa


12. júlí 2012 klukkan 09:17
Bob Diamond

Nú er talið líklegt að Bob Diamond, fyrrverandi forstjóri Barclaysbanka verði kallaður fyrir bandaríska þingnend eða nefndir til að svara spurningum um Liborvaxtahneykslið. Um er að ræða bankanefnd öldungadeildarinnar og nefnd fulltrúadeildar, sem fjallar um fjármálaþjónustu.

Nefnd öldungadeildarinnar mun kalla fyrir sig bæði Bernanke, bankastjóra Seðlabanka Bandaríkjanna og Timothy Geithner, fjármálaráðherra fyrir sumarfrí, sem hefjast í ágúst. Bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur hafið rannsókn á málinu og borgir og lífeyrissjóðir undirbúa málssóknir á þeirri forsendu, að þessir aðilar hafi orðið fyrir fjártjóni. Nú þegar stendur yfir rannsókn á Citigroup, HSBC og JP Morgan Chase af sömu ástæðum.

Guardian sem segir frá þessu upplýsir að um 45% fasteignaveðlána í Bandaríkjunum tengist Libor. Borgir á borð við Baltimore haldi því fram, að þær hafi orðið að skera niður nauðsynlega þjónustu vegna taps á fjárfestingum, sem hafi verið tengdar Libor.

Guardian bendir á að Geithner hafi verið forstjóri Seðlabanka New York á árinu 2008 og þann 28. apríl það ár hafi hann efnt til fundar um Libor og komið á framfæri við brezk stjórnvöld áhyggjum sínum. Viðmælendur Guardian telja hugsanlegt að repúblikanar reyni að tengja Geithner við málið. Aðrir segja, að ekkert kæmi Obama betur en að geta ákært bankamann af þessum sökum fyrir fosetakosningarnar í nóvember.

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Styrmi Gunnarsson Pistill

Olíuvinnsla við Ísland (II): Þjónusta við orkuþríhyrning norður af Íslandi opnar ný tækifæri

Í BA-ritgerð í hagfræði, sem Hildur Sturlu­dóttir skrifaði við Háskóla Íslands og birt var í febrúar á þessu ári er ferlinu við hugsanlega olíuvinnslu lýst með eftirfarandi hætti: "Fyrsta stigið kallast frumathugunarstig.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Grikkland: Flótti frá PASOK

Fyrrverandi menntamála­ráðherra Grikklands, Anna Diamantopoulo, sem er úr PASOK, flokki sósíalista, sem stjórnaði Grikklandi í upphafi grísku kreppunnar, lýsti í gær yfir áformum um að stofna nýjan flokk. Hún sagði í viðtali við gríska ríkissjónvarpið að flokkur sósíalista væri kominn að leiðarlokum. "

Forseti Írlands: ESB endurspeglar ekki beztu hagsmuni fólksins í Evrópu

Michael D Higgins, forseti Írlands sagði í gær á alþjólegri ráð­stefnu háskóla í Evrópu, sem haldin er í Háskóla Írlands (NUI Galway), að Evrópu­sambandið endurspegli ekki beztu hagsmuni fólksins í Evrópu. Hann gagnrýndi ESB fyrir að hafa of litla trú á vitsmunalegum hefðum (intellectual tradition) Evrópu.

Franskur dómstóll: Lagarde skal ekki hafa stöðu grunaðs manns

Franskur dómstóll hefur komist að þeirri niðurstöðu, að Christine Lagarde, for­stjóri AGS og fyrrum fjármála­ráðherra Frakklands skuli ekki hafa stöðu grunaðs manns í hneykslismáli, sem varðar 400 milljón evra mútu­greiðslur til stuðningsmann Nicholas Sarkozy, fyrrum forseta Frakklands. Þetta kemur fram í Financial Times.

Stokkhólmur: Ástandið að róast en samt kveikt í bílum í gærkvöldi

Það var heldur rólegra ástand í úthverfum Stokkhólms í gærkvöldi, föstudagskvöld, lög­reglan fékk liðstyrk frá Malmö og Gautaborg, sem virðist hafa dugað að verulegu leyti. Þó var kveikt í tveimur bílum. Og ríkis­stjórnin hélt neyðarfund. Í Orebro í miðhluta Svíþjóðar kveiktu 25 grímuklædd ungmenni í þremur bílum, kveiktu í skóla og reyndu að bera eld að lög­reglustöð.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS