Seðlabanki Evrópu er að breyta um stefnu í grundvallaratriðum, þegar um er að ræða fall banka og hagsmuni eigenda helztu skuldabréfa, sem slíkir bankar hafa gefið út. Hingað til hefur ekki mátt ræða það að eigendur skuldabréfa verði fyrir töpum. (Þess vegna fékk írska ríkisstjórnin fyrirmæli haustið 2008 frá ESB og Seðlabanka Evrópu um að lýsa yfir ábyrgð á öllum skuldbindingum írskra einkabanka).Nú upplýsir Wall Street Journal, að Mario Draghi, aðalforstjóri SE hafi á fundi í Brussel að kvöldi 9. júlí sl. hvatt til þess að skuldabréfaeigendur yrðu látnir taka á sig töp. WSJ bendir á að þetta sé grundvallarbreyting á afstöðu bankans miðað við stefnu hans gagnvart írsku bönkunum,
Í frétt blaðsins kemur fram að fjármálaráðherrar evruríkjanna hafi hafnað þessum tillögum Draghi á þeirri forsendu, að hún mundi valda óróa á mörkuðum. Hins vegar er gert ráð fyrir að hluthafar og ver settir skuldabréfaeigendur banka á Spáni taki á sig töp.
Þrátt fyrir þessa afstöðu fjármálaráðherra evruríkjanna telur WSJ tillögu Draghi vísbendingu um að stefnubreyting sé í aðsigi og meiri háttar breyting sé að verða á því hvernig tekið sé á málefnum banka í vandræðum.
Olíuvinnsla við Ísland (II): Þjónusta við orkuþríhyrning norður af Íslandi opnar ný tækifæri
Í BA-ritgerð í hagfræði, sem Hildur Sturludóttir skrifaði við Háskóla Íslands og birt var í febrúar á þessu ári er ferlinu við hugsanlega olíuvinnslu lýst með eftirfarandi hætti: "Fyrsta stigið kallast frumathugunarstig.
Finnland: Verður rússneska opinbert tungumál minnihluta
Nú eru um 62 þúsund rússneskumælandi í Finnlandi en gert er ráð fyrir að þeir verði orðnir um 240 þúsund árið 2050. Þetta þýðir að á 40 árum verða rússneskumælandi Finnar jafnmargir og sænskumælandi Finnar eru í dag. Fjöldi rússneskumælandi Finna hefur tvöfaldast á einum áratug. Hér er átt við fólk,...
ESB: Frakkar verða að breyta um stefnu eða sæta refsiaðgerðum ella segir fulltrúi Þýzkalands
Fulltrúi Þýzkalands í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, Guenther Oettinger, sagði í gær að Frakkar yrðu að koma fram umbótum á lífeyriskerfi sínu og frelsisvæða vinnumarkað sinn eða horfast í augu við refsiaðgerðir af hálfu ESB. Í síðustu viku veitti ESB Frakklandi tveggja ára frest til að koma fj...
Þýzka timaritið Der Spiegel segir að það sé að verða til „týnd kynslóð“ í Evrópu. Hin pólitíska elíta á meginlandinu hafi frekar viljað standa í gömlu hugmyndafræðilegu stríði en snúa sér að því verki að koma upp árangursríkri menntun og þjálfun, sem geri ungu fólki í Suður-Evrópu kleift að finna vinnu við sitt hæfi.
Hæðst að skriffinnum ESB vegna ólívuolíunnar - sagt minna á bannið við bognum agúrkum
Ákvörðun nefndar á vegum framkvæmdastjórnar ESB um að frá 1. janúar 2014 skuli ólívuolía borin fram í lokuðum flöskum á borð veitingastaða þykir mörgum hin undarlegasta frá því að lagt var bann við bognum agúrkum sá sínum tíma segir í The Guardian mánudaginn 20. maí. Blaðið segir að hæðst sé að sk...