Föstudagurinn 24. maí 2013

Deutsche Bank reynir að bjarga eigin skinni með samstarfi við rannsókn á vaxta­svindli


16. júlí 2012 klukkan 20:27

Fulltrúar Deutsche Bank, stærsta banka Þýskalands, vinna nú með þeim sem rannsaka svindlið á millibankavöxtum. Rekja má samvinnu bankans við eftirlitsaðila til þess að stjórnendur hans vilji leggja sig fram í því skyni að lækka hugsanlegar sektir á bankann.

Af hálfu Deutsche Bank hefur verið farið fram á við framkvæmdastjórn ESB og stjórnvöld í Sviss að bankinn fái stöðu sem samstarfsvitni í rannsókninni sem stofnað hefur verið til vegna þess að beitt var blekkingum við að skrá Libor-vexti (London Interbank Offered Rate), millibankavexti í London.

Der Spiegel sagði frá því sunnudaginn 15. júlí að Deutsche Bank hefði þegar árið 2011 boðist til að semja við eftirlitstofnanir innan ESB í því skyni „að takmarka tjón fyrir orðspor sitt“. Der Spiegel hefur eftir heimildarmanni sínum: „Nú ríkir kvíði innan Deutsche Bank.“

Bankinn er einn af um 20 bönkum sem taldir koma að svindli vegna Libor-vaxtanna. Þeir eru skráðir af British Bankers' Association samkvæmt upplýsingum frá stórbönkum um hve mikið þeir telji sig þurfa að greiða fyrir lán sín á milli. Bankarnir eru sakaðir um að hafa gefið rangar upplýsingar um Libor á árunum 2005 til 2011.

Der Spiegel segir að framkvæmdastjórn ESB hafi þegar veitt Barclays-banka í Bretlandi og UBS-bankanum í Sviss stöðu samstarfsvitnis. Þá hafi framkvæmdastjórnin ákveðið að veita þeim banka fulla sakaruppgjöf sem yrði fyrstur til samstarfs og minni refsingu fyrir tvo aðra banka sem upplýstu um þátt sinn í vaxtasvindlinu.

Barclays-banki sem situr í miðju hneykslisins var sektaður um 350 milljón evrur í júní sl. af breskum og bandarískum yfirvöldum. Þýska fréttastofan DPA vitnar mánudaginn 16, júlí í rannsókn á vegum bandaríska fjárfestingabankans Morgan Stanley sem segi á milljarður dollara sé í húfi fyrir Deutsche Bank og að alls kunni bankarnir sem séu til rannsóknar að verða sektaðir um 22 milljarða dollara.

Heimild: dw.de

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Styrmi Gunnarsson Pistill

Olíuvinnsla við Ísland (II): Þjónusta við orkuþríhyrning norður af Íslandi opnar ný tækifæri

Í BA-ritgerð í hagfræði, sem Hildur Sturlu­dóttir skrifaði við Háskóla Íslands og birt var í febrúar á þessu ári er ferlinu við hugsanlega olíuvinnslu lýst með eftirfarandi hætti: "Fyrsta stigið kallast frumathugunarstig.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kýpur sakar þríeykið um rangfærslur í skýrslu um peningaþvætti

Kýpversk stjórnvöld saka þríeykið, ESB/AGS/SE um að rangfæra upplýsngar um peingaþvætti í bönkum á Kýpur í nýrri skýrslu, sem sagt hefur verið frá hér á Evrópu­vaktinni. Þau segja að ályktanir, sem séu dregnar í skýrslunni séu tilefnislausar.

Barack Obama boðar nýja stefnu í baráttunni við hryðjuverkamenn - vill takmarka notkun dróna og þrengja vald CIA

Barack Obama Bandaríkja­forseti kynnti nýja stefnu í stríðinu gegn hryðjuverkum í ræðu sem hann flutti í National Defense University í Washington fimmtudaginm 23. maí. Þetta stríð gæti ekki staðið „að eilífu“, því yrði að ljúka en baráttan gegn hryðjuverkamönnum að halda áfram. Stefnan hefur verið...

Grikkland: 70 bílar til afnota fyrir stjórnmálamenn

Gríska ríkis­stjórnin hefur lagt fyrir gríska þingið upplýsingar um svo­nefnda „kurteisisbíla“ í eigu hins opinbera. Þessar upplýsingar eru lagðar fram vegna þrýstings frá þríeykinu um niðurskurð úgjalda og gagnsæi. Gríska ríkið á 153 bíla af þessu tagi. 70 þeirra eru til afnota fyrir stjórnmálamenn.

Þýzkaland: Aukin einkaneyzla tryggði örlítinn hagvöxt

Hagvöxtur í Þýzkalandi á fyrsta fjórðungi þessa árs var nánast enginn eða um 0,1% að því er fram kemur á BBC. Samdráttur varð í útflutningi og fjárfestingum en einkaneyzla jókst. Á síðasta fjórðungi síðasta árs varð samdráttur um 0,7%. Talið er að efnahagslægð sé gengin í garð, þgar samdráttur verðu...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS