Jóhann Karl Spánarkonungur hefur verið þurrkaður út sem verndari deildar World Wildlife Fund á Spáni vegna fílaveiðiferðar sem hann fót til Botswana. Skýrt var frá þessu á vefsíðu Spánardeildarinnar að kvöldi laugardags 21. júlí. Þar kom fram að konungur hefði verið sviptur heiðursforseta tign sinni í deildinni vegna kvartana vegna veiðiferðar hans.
Fréttir bárust af hinni leynilegu veiðiferð í apríl þegar flogið var heim með konung til lækninga eftir að hann hafði dottið. Þá spurðist að konungur hefði verið á fílaveiðum.
„Í dag fór fram atkvæðagreiðsla á aðalfundi Spánardeildar WWF og var ákveðið að leggja niður stöðu heiðursforseta en Jóhann Karl konungur hefur skipað hana til þessa,“ sagði í tilkynningu á netinu.
Fílaveiðar eru heimilaðar lögum samkvæmt í Botswana engu að síður vakti veiðiferð konungs nokkra gagnrýni meðal félagsmanna í WWF-Spánardeild.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Kínverjar reyna að blekkja Evrópumenn með gervi-aspiríni
Franskir tollverðir hafa gert upptæka 1,2 milljón skammta af gervi-aspiríni frá Kína.
Fyrrverandi menntamálaráðherra Grikklands, Anna Diamantopoulo, sem er úr PASOK, flokki sósíalista, sem stjórnaði Grikklandi í upphafi grísku kreppunnar, lýsti í gær yfir áformum um að stofna nýjan flokk. Hún sagði í viðtali við gríska ríkissjónvarpið að flokkur sósíalista væri kominn að leiðarlokum. "
Forseti Írlands: ESB endurspeglar ekki beztu hagsmuni fólksins í Evrópu
Michael D Higgins, forseti Írlands sagði í gær á alþjólegri ráðstefnu háskóla í Evrópu, sem haldin er í Háskóla Írlands (NUI Galway), að Evrópusambandið endurspegli ekki beztu hagsmuni fólksins í Evrópu. Hann gagnrýndi ESB fyrir að hafa of litla trú á vitsmunalegum hefðum (intellectual tradition) Evrópu.
Franskur dómstóll: Lagarde skal ekki hafa stöðu grunaðs manns
Franskur dómstóll hefur komist að þeirri niðurstöðu, að Christine Lagarde, forstjóri AGS og fyrrum fjármálaráðherra Frakklands skuli ekki hafa stöðu grunaðs manns í hneykslismáli, sem varðar 400 milljón evra mútugreiðslur til stuðningsmann Nicholas Sarkozy, fyrrum forseta Frakklands. Þetta kemur fram í Financial Times.