Fotis Kouvelis, leiðtogi Lýðræðislega vinstrabandalagsins, sem er einn þeirra þriggja flokka, sem standa að ríkisstjórn Samaras, sagði í viðtali við Skai-sjónvarpsstöðina í Grikkandi í morgun, að sú hætta væri ekki liðin hjá, að Grikkland yrði að yfirgefa evrusvæðið. Kouvelis sagði að Grikkir þyrftu á því að halda að endursemja um lánaskilmála og lengingu á þeim tíma, sem þeir hafa fengið til að uppfylla skilyrði lánveitenda. Hann sagði jafnframt að þetta yrði að vinna með samtölum við aðildarríkin en ekki þríeykið, sem hann lýsti sem eins konar „milligöngu stofnun“.
Í gær sagði Guido Westerwelle, utanríkisráðherra Þýzkalands hins vegar að frekari breytingar á lánaskilmálum kæmu ekki til greina og Wolfgang Schauble, fjármálaráðherra Þýzkalands, sagði í viðtali við franska dagblaðið Le Figaro, að Grikkir ættu ekki að víkja frá skuldbindingum sínum um kerfisbreytingar í Grikklandi.
Frá þessu segir ekathimerini.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Kínverjar reyna að blekkja Evrópumenn með gervi-aspiríni
Franskir tollverðir hafa gert upptæka 1,2 milljón skammta af gervi-aspiríni frá Kína.
Fyrrverandi menntamálaráðherra Grikklands, Anna Diamantopoulo, sem er úr PASOK, flokki sósíalista, sem stjórnaði Grikklandi í upphafi grísku kreppunnar, lýsti í gær yfir áformum um að stofna nýjan flokk. Hún sagði í viðtali við gríska ríkissjónvarpið að flokkur sósíalista væri kominn að leiðarlokum. "
Forseti Írlands: ESB endurspeglar ekki beztu hagsmuni fólksins í Evrópu
Michael D Higgins, forseti Írlands sagði í gær á alþjólegri ráðstefnu háskóla í Evrópu, sem haldin er í Háskóla Írlands (NUI Galway), að Evrópusambandið endurspegli ekki beztu hagsmuni fólksins í Evrópu. Hann gagnrýndi ESB fyrir að hafa of litla trú á vitsmunalegum hefðum (intellectual tradition) Evrópu.
Franskur dómstóll: Lagarde skal ekki hafa stöðu grunaðs manns
Franskur dómstóll hefur komist að þeirri niðurstöðu, að Christine Lagarde, forstjóri AGS og fyrrum fjármálaráðherra Frakklands skuli ekki hafa stöðu grunaðs manns í hneykslismáli, sem varðar 400 milljón evra mútugreiðslur til stuðningsmann Nicholas Sarkozy, fyrrum forseta Frakklands. Þetta kemur fram í Financial Times.