Föstudagurinn 24. maí 2013

Spánn: Hrópað og hrækt á ráðherra


22. júlí 2012 klukkan 10:04
Spænski fáninn blaktir yfir Plaza de Cibeles í Madrid.

Cristina Cifuentes, sem sæti á í ríkisstjórn Mariano Rajoy á Spáni og hefur m.a. verið talsmaður ríkisstjórnarinnar í málum, sem varða mótmæli í spænskum borgum stóð allt í einu um helgina frammi fyrir mótmælendum augliti til auglitis af tilviljun, þegar hún var í verzlunarferð. Þeir þekktu hana og gerðu köll að henni og hræktu á hana. Hún leitaði skjóls í nærliggjandi veitingahúsi og kvaðst ekki hafa viljað fara heim til sín vegna þess, að þá hefðu mótmælendur uppgötvað hvar hún ætti heima og ekki látið hana í friði þar.

Starfsfólk veitingahússins fylgdi henni út um bakdyr inn í hótel, sem var þar skammt frá. Þegar þangað kom var henni sagt að þar sem hún væri ekki gestur á hótelinu gæti hún ekki hafizt við í anddyri þess.

Cristina Cifuentes sagði að sögn El Pais, spænska dagblaðsins, að hún mundi ekki láta ógna sér en halda áfram störfum sínum og í engu hvika.

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Ítalía: Beppe Grillo ætlar að knýja fram þjóðar­atkvæða­greiðslu um ESB og evruna

Beppe Grillo, leiðtogi 5-stjörnu-hreyfingarinnar á Ítalíu, sigurvegara kosninganna í febrúar 2013 ætlar að beita sér fyrir söfnun 500.000 undirskrifta til að knýja fram þjóðar­atkvæða­greiðslu á Ítalíu um ESB og evruna. Grillo sem er í stjórnar­andstöðu á ítalska þinginu ætlar að þvinga fram þjóðaratk...

Dansmærin Ruby breytir framburði sínum í máli sem tengist Berlusconi

Ruby, unga stúlkan frá Marokkó, sem er höfuðpersónan í málaferlum gegn Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætis­ráðherra Ítalíu, og félögum hans fyrir að hafa greitt fyrir kynlíf með henni sagði fyrir rétti í Mílanó föstudaginn 24. maí að hún hefði búið til sögur um svæsnar kvöldskemmtanir með „Cavali...

Kýpur sakar þríeykið um rangfærslur í skýrslu um peningaþvætti

Kýpversk stjórnvöld saka þríeykið, ESB/AGS/SE um að rangfæra upplýsngar um peingaþvætti í bönkum á Kýpur í nýrri skýrslu, sem sagt hefur verið frá hér á Evrópu­vaktinni. Þau segja að ályktanir, sem séu dregnar í skýrslunni séu tilefnislausar.

Barack Obama boðar nýja stefnu í baráttunni við hryðjuverkamenn - vill takmarka notkun dróna og þrengja vald CIA

Barack Obama Bandaríkja­forseti kynnti nýja stefnu í stríðinu gegn hryðjuverkum í ræðu sem hann flutti í National Defense University í Washington fimmtudaginm 23. maí. Þetta stríð gæti ekki staðið „að eilífu“, því yrði að ljúka en baráttan gegn hryðjuverkamönnum að halda áfram. Stefnan hefur verið...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS