Sunnudagurinn 19. maí 2013

Noregur: 75% andstaða við ESB-aðild - 69% innan Hægri­flokksins þrátt fyrir aðildar­stefnu flokksforystunnar


22. júlí 2012 klukkan 21:16

Ný skoðanakönnun í Noregi sýnir að 69% af kjósendum Hægriflokksins segja að þeir myndu hafna aðild að ESB yrði greitt atkvæði um það nú. Könnunin var gerð af Sentio fyrir Nationen og Klassekampen og birt laugardaginn 21. júlí. Í mars 2012 var þetta hlutfall 64%.

„Þetta sýnir að Hægri er flokkur þar sem forystan er í andstöðu við eigin kjósendur,“ segir Heming Olaussen, forystumaður Nei við ESB, við Nationen.

Hin opinbera stefna Hægriflokksins er að Noregur eigi að ganga í ESB. Nicolay Astrup, þingmaður flokksins, segir að efnahagskreppan í Evrópu leiði til hinnar miklu andstöðu við ESB innan flokksins.

„Hægriflokkurinn hefur mótað skýra stefnu. Við höldum okkur við hana en við sjáum einnig að aðild er ekki mál sem ræða ber á þessari stundu,“ segir þingmaðurinn.

Nú segja 74,8% Norðmanna nei við ESB aðild, 17,2 segjast styðja aðild, 7,9% eru óákveðnir.

Flestir stuðningsmenn ESB-aðildar eru meðal kjósenda Venstre-flokksins, 23% segjast nú mundu segja já við aðild sem er hins vegar 11%-stigum lægra hlutfall en í síðustu könnun.

„Tölurnar koma mér ekki á óvart. Andstaðan eykst vegna kreppunnar í Evrópu, þá þorir enginn já-flokkur að tala fyrir aðild vegna ástandsins í Evrópu og þessara talna í skoðanakönnunum,“ segir Guri Melby, formaður stefnuskrárnefndar Venstre.

Heimild: E24

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Howe lávarður segir Cameron hafa misst flokkstökin í ESB-málum

Howe lávarður segir að David Cameron, forsætis­ráðherra Breta, sé að missa tökin á Íhalds­flokknum vegna ágreinings um ESB-mál. Howe lávarður gegndi lykilhlutverki árið 1990 þegar Margaret Thatcher var hrakin úr forystu flokksins vegna ágreinings um ESB-mál.

Ítalía: Um 38% ungmenna án atvinnu

Um 38% ungmenna á Ítalíu á aldrinum 15-24 ára eru atvinnulaus skv. yfirliti, sem birt er á fréttavef BBC í tilefni af mótmælum um 100 þúsund Rómarbúa vegna heimsóknar Angelu Merkel til Ítalíu í gær. Atvinnuleysi er langmest í þessum aldurs­flokki á Grikklandi og Spáni, eins og áður hefur komið fram en Ítalía er í þriðja sæti.

Ný könnun: 46% Breta vilja yfirgefa Evrópu­sambandið

Samkvæmt nýri skoðanakönnun, sem gerð var fyrir Sunday Telegraph í London vilja 46% Breta yfirgefa Evrópu­sambandið.

Merkel á löngum einkafundi með Frans páfa

Angela Merkel Þýskalandskanslari ræddi í 45 mínútur við Frans páfa á einkafundi laugardaginn 18. maí,. Fréttastofan Deutsche Welle segir að óvenjulegt sé að einkafundir með páfa séu svo langir. Merkel er leiðtogi kristilegra demókrata í Þýskalandi þar sem kaþólskir kjósendur skipta miklu. Merkel er ...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS