Ítalskt dagblað birtir mynd af Angelu Merkel undir fyrirsögninni Fjórða ríkið
Mario Monti, forsætisráðherra Ítalíu varar við því í samtali við þýzka tímaritið Der Spiegel nú um helgina að evrukreppan sé að leiða til þjóðfélagslegra átaka í Evrópu, sem geti orðið til að sundra heimsálfunni og að ríki snúizt hvert gegn öðru. Andúð á Þýzkalandi fer að hans mati vaxandi á Ítalíu svo og gegn Evrópusambandinu og jafnvel Angelu Merkel sjálfri. Hann segir spennu í samskiptum ríkjanna vísa á sálræna splundun Evrópu. Í viðtalinu við Spiegel segist Monti hafa áhyggjur af þessari þróun og að ríkisstjórnir verði að leggja hart að sér að halda henni í skefjum.
Ítalskt dagblað, il Giornale, birti fyrir skömmu forsíðumynd af Angelu Merkel með uppréttar hendur undir fyrirsögninni: Fjórða ríkið (tilvísun til Þriðja ríkis Hitlers).
Romano Prodi, fyrrum forsætisráðherra Ítalíu og fyrrum forseti framkvæmdastjórnar ESB hefur skrifað grein í þýzka dagblaðið Bild, þar sem hann hvetur Þýzkaland til að sýna raunverulega forystu og segir Þjóðverja bera skyldu til að leiða meginlandið út úr kreppunni og til betri framtíðar. Hann segir að bregðist Þýzkaland þessari skyldu sinni þýði það pólitísk endalok Evrópu og Þýzkalands.
Í viðtalinu við Spiegel segir Monti að það sé lína í Evrópu á milli norðurs og suðurs og beggja megin hennar megi finna gagnkvæma fordóma.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Grikkland: Dómstóll frestar lokun ríkisútvarpsins
Stjórnsýsludómstóll Grikklands hefur frestað ákvörðun ríkisstjórnar landsins um að loka ríkisútvarpinu, ERT. Dómstóllinn sagði mánudaginn 17. júní að ERT gæti starfað áfram þar til nýtt ríkisútvarp kæmi til sögunnar. Deilur hafa verið um lokun ERT síðan Antonis Samaras forsætisráðherra tók ákvörðun...
Birgir Ármannsson segir Damanaki kikna undan þrýstingi ESB-þingmanna
Birgir Ármannsson, formaður utanríkismálanefndar alþingis, sagði við fréttastofu ríkisútvarpsins mánudaginn 17. júní að Maria Damanaki, sjávarútvegsstjóri ESB, hefði mælt harkalega í garð Íslendinga á ESB-þinginu í síðustu viku vegna þrýstings frá þingmönnum. Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráð...
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra brá skildi fyrir Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, í þjóðhártíðarávarpi sínu á Austurvelli mánudaginn 17. júní þegar hann lýsti undrun yfir að menn hefðu efast um hvort viðeigandi hefði verið fyrir forseta að ræða fullveldismál við þingsetningu. Sig...
Grænland: Áform um laxveiðar í sjó valda áhyggjum
Áform Grænlendinga um laxveiðar í sjó valda áhyggjum nágrannaríkja segir á vefmiðlinum Alaska Dispatch. Þar kemur fram, að Grænlendingar hafi ekki stundað laxveiðar í sjó í áratug í þágu verndunaraðgerða. Nú hafi þeir hins vegar tilkynnt um stefnubreytingu, sem hafi verið rædd á fundi á Írlandi fyrr í þessum mánuði en sá fundur hafi ekki borið árangur.