
Fjármálafyrirtæki á Wall Street búa sig nú undir hugsanlega brottför einstakra ríkja af evrusvæðinu að því er fram kemur í Financial Times í dag. Þau vinna að því að breyta samningum við samstarfsaðila og lántakendur eða vísa þeim síðarnefndu á aðra banka. Markmiðið er að komast hjá því að þurfa að taka við endurgreiðslum í gengisfelldum drökmum.
FT segir að evrukreppan sé meira áhyggjuefni forráðamanna fjármálafyrirtækja í Bandaríkjunum en efnahagsástandið vestan hafs.
Olíuvinnsla við Ísland (II): Þjónusta við orkuþríhyrning norður af Íslandi opnar ný tækifæri
Í BA-ritgerð í hagfræði, sem Hildur Sturludóttir skrifaði við Háskóla Íslands og birt var í febrúar á þessu ári er ferlinu við hugsanlega olíuvinnslu lýst með eftirfarandi hætti: "Fyrsta stigið kallast frumathugunarstig.
Ástralía: Fékk höfuðhögg tók að tala ensku með frönskum hreim
Áströlsk kona tók að tala ensku með frönskum hreim eftir að hún vaknaði eftir umferðarslys þar sem hún hlaut höfuðhögg. Um er að ræða sjaldgæft heilkenni sem um 60 manns hafa greinst með á 100 árum segir í blaðinu Le Figaro. Leanne Rowe hefur aldrei farið til Frakklands og á enga franska vini.
Grikkland: Leiðtogar stjórnarflokka funda síðdegis um ERT
Leiðtogar stjórnarflokkanna þriggja á Grikklandi koma saman til fundar síðdegis í dag til þess að reyna að ná samkomulagi um örlög og framtíð gríska ríkisútvarpsins-sjónvarps. Samkvæmt úrskurði stjórnlagadómstóls Grikklands sl. mánudag hafði ríkisstjórnin leyfi til að loka ERT en ekki að slökkva á útsendingu. Stjórnarflokkarnir hver um sig túlka þessa niðurstöðu eins og þeim hentar.
NSA og FBI hafa hindrað rúmlega 50 tilraunir til hryðjuverka síðan 11. september 2001
Þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna (NSA) og Alríkislögregla Bandaríkjanna (FBI) hafa að eigin sögn komið í veg fyrir að minnsta kosti 50 tilraunir til hryðjuverka frá 11. september 2011. Google-fyrirtækið hefur óskað eftir að fá að birta hvernig þátttöku þess í verkefnum gegn hryðjuverkum hefur veri...
Forseti Kýpur fer fram á allsherjar endurskoðun björgunaraðgerða
Nikos Anastasiades, forseti Kýpur hefur skrifað leiðtogum evrusvæðisins bréf og farið fram á allsherjar endurskoðun á þeim skilmálum, sem Kýpur tók á sig vegna björgunarláns að upphæð 10 milljarðar evra. Í bréfinu segir forsetinn að Kýpur geti ekki uppfyllt þessa skilmála vegna þess að aðgerðirnar hafi skaðað efnahag landsins og bankakerfið meira en búizt var við.