Síldarkvótinn í Eystrasalti er að fullu veiddur á þessu ári að sögn Helsingin Sanomat. Frekari síldveiðar hafa verið bannaðar nema nyrzt. Síldaraflinn varð svo mikill á fyrstu mánuðum ársins að ekki eru lengur til kvótar. Ein af ástæðunum fyrir því hve vel hefur veiðst er að ís hefur ekki hamlað veiðum.
Hins vegar er enn óveiddur kvóti nyrzt í Botníuflóa, þar sem ekki er hægt að veiða að vetri til vegna ísa.
Laxveiði í sjó hefur einnig verið bönnuð á þessu svæði til loka ársins.
Olíuvinnsla við Ísland (II): Þjónusta við orkuþríhyrning norður af Íslandi opnar ný tækifæri
Í BA-ritgerð í hagfræði, sem Hildur Sturludóttir skrifaði við Háskóla Íslands og birt var í febrúar á þessu ári er ferlinu við hugsanlega olíuvinnslu lýst með eftirfarandi hætti: "Fyrsta stigið kallast frumathugunarstig.
Fyrrverandi menntamálaráðherra Grikklands, Anna Diamantopoulo, sem er úr PASOK, flokki sósíalista, sem stjórnaði Grikklandi í upphafi grísku kreppunnar, lýsti í gær yfir áformum um að stofna nýjan flokk. Hún sagði í viðtali við gríska ríkissjónvarpið að flokkur sósíalista væri kominn að leiðarlokum. "
Forseti Írlands: ESB endurspeglar ekki beztu hagsmuni fólksins í Evrópu
Michael D Higgins, forseti Írlands sagði í gær á alþjólegri ráðstefnu háskóla í Evrópu, sem haldin er í Háskóla Írlands (NUI Galway), að Evrópusambandið endurspegli ekki beztu hagsmuni fólksins í Evrópu. Hann gagnrýndi ESB fyrir að hafa of litla trú á vitsmunalegum hefðum (intellectual tradition) Evrópu.
Franskur dómstóll: Lagarde skal ekki hafa stöðu grunaðs manns
Franskur dómstóll hefur komist að þeirri niðurstöðu, að Christine Lagarde, forstjóri AGS og fyrrum fjármálaráðherra Frakklands skuli ekki hafa stöðu grunaðs manns í hneykslismáli, sem varðar 400 milljón evra mútugreiðslur til stuðningsmann Nicholas Sarkozy, fyrrum forseta Frakklands. Þetta kemur fram í Financial Times.
Stokkhólmur: Ástandið að róast en samt kveikt í bílum í gærkvöldi
Það var heldur rólegra ástand í úthverfum Stokkhólms í gærkvöldi, föstudagskvöld, lögreglan fékk liðstyrk frá Malmö og Gautaborg, sem virðist hafa dugað að verulegu leyti. Þó var kveikt í tveimur bílum. Og ríkisstjórnin hélt neyðarfund. Í Orebro í miðhluta Svíþjóðar kveiktu 25 grímuklædd ungmenni í þremur bílum, kveiktu í skóla og reyndu að bera eld að lögreglustöð.