
Tony Blair, fyrrum forsætisráðherra og leiðtogi brezka Verkamannaflokksins, sem fjölmiðlar þar í landi telja að íhugi endurkomu í stjórnmálin segist í samtali við þýzka vikublaðið Die Zeit hafa miklar áhyggjur af því að Bretland muni yfirgefa Evrópusambandið fari fram þjóðaratkvæðagreiðsla um afstöðuna til ESB. Hann segir einnig að það sem gæti ýtt undir slíkar skoðanir í Bretlandi sé of mikil valdatilfærsla til Brussel.
Blair segir í Die Zeit að áframhaldandi evrukreppa muni leiða til víðtækra pólitískra breytinga á ESB (powerful political changes of the EU). Ef flytja eigi meiri völd til Brussel verði aðgerðir til þess að auka lýðræði í starfsháttum ESB að fylgja með. Blair segir að Bretland verði að láta sig þessa þróun varða og segir að það verði að vera jafnvægi á milli evrópskra stofnana og einstakra aðildarríkja.
Ef þetta verður ekki gert með réttum hætti segir Blair getum við staðið frammi fyrir pólitískri kreppu, sem getur orðið jafn alvarleg eins og evrukreppan. Fólk mun ekki fallast á að þjóðríkin hverfi.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Stokkhólmur: Kveikt í bílum-íkveikjur í níu borgarhverfum-vandamál tengd innflytjendum
Í gærkvöldi og í morgun var kveikt í bílum í Stokkhólmi og ólæti breddust út til margra hverfa borgarinnar að því er fram kemur í Financial Times, sem segir að þetta hafi gerzt þrjá daga í röð. Lögreglan í Stokkhólmi hefur handtekið einhverja og segir stöðuna flókna vegna fjölda hverfa en bendir á, að staðan sé rólegri í Husby, hverfi, þar sem margi innflytjendur eru saman komnir.
Ítalía: Milljónir hafa ekki efni á að hita heimili sín eða borða kjöt
Milljónir Ítala hafa ekki efni á að hita upp heimili sín eða borða kjöt segir í nýrri skýrslu frá hagstofu Ítalíu, ISTAT. Efnahagslægð, sem staðið hefur í tvö ár hefur komið þungt niður á almennum borgurum, sem ganga meira og meira á sparnað sinn. Fjöldi þess fólks sem stendur svo höllum fæti, sem h...
Ný ríkisstjórn gerir hlé á aðildarviðræðum- nýjar viðræður ekki án þjóðaratkvæðagreiðslu
Af fréttum Morgunblaðsins í dag má ráða að ný ríkisstjórn muni gera hlé á aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið og að þær verði ekki teknar upp að nýju nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu. Samkvæmt heimildum Evrópuvaktarinnar verður gerð úttekt á stöðu viðræðnanna eins og þær standa nú og stöðu mála innan Evrópusambandsins.
Þrír fyrrverandi framkvæmdastjórar Saab handteknir - grunaðir um skattsvik
Þrír fyrrverandi framkvæmdastjórar Saab-bílasmiðjunnar í Svíþjóð hafa verið handteknir í Svíþjóð vegna gruns um bókhaldsbrot. Olof Sahlgren saksóknari telur að þremenningarnir hafi gerst sekir um alvarlegar tilraunir til að skjóta sér undan skattayfirvöldum.