Guido Westerwelle, utanríkisráðherra Þýskalands, segir við blaðið Bild am Sonntag sem dagsett er 12. ágúst að hann vilji að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu í Þýskalandi um nýja stjórnarskrá ESB.

„Ég vona að við fáum raunverulega stjórnarskrá ESB og það verði efnt til þjóðaratkvæðagreiðslu um hana,“ segir Westerwelle sem er fyrrverandi formaður frjálsra demókrata (FDP) og myndaði ríkisstjórn í Þýskalandi eftir síðustu þingkosningar þar árið 2009.
Westerwelle bætist því í hóp hinna þýsku forystumanna sem telja nauðsynlegt að bera málefni ESB undir þjóðina alla. Frá þeim var sagt hér á Evrópuvaktinni föstudaginn 10. ágúst.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Franskur dómstóll: Lagarde skal ekki hafa stöðu grunaðs manns
Franskur dómstóll hefur komist að þeirri niðurstöðu, að Christine Lagarde, forstjóri AGS og fyrrum fjármálaráðherra Frakklands skuli ekki hafa stöðu grunaðs manns í hneykslismáli, sem varðar 400 milljón evra mútugreiðslur til stuðningsmann Nicholas Sarkozy, fyrrum forseta Frakklands. Þetta kemur fram í Financial Times.
Stokkhólmur: Ástandið að róast en samt kveikt í bílum í gærkvöldi
Það var heldur rólegra ástand í úthverfum Stokkhólms í gærkvöldi, föstudagskvöld, lögreglan fékk liðstyrk frá Malmö og Gautaborg, sem virðist hafa dugað að verulegu leyti. Þó var kveikt í tveimur bílum. Og ríkisstjórnin hélt neyðarfund. Í Orebro í miðhluta Svíþjóðar kveiktu 25 grímuklædd ungmenni í þremur bílum, kveiktu í skóla og reyndu að bera eld að lögreglustöð.
Ritað undir fríverslunarsamning Kína og Sviss
Ritað hefur verið undr fríverslunarsamning Kína og Sviss og segir BBC að hann kunni að verða „first such deal with a major Western economy“, fyrsti slíkur samningur Kína við öflugt vestrænt efnahagsríki.
Ítalía: Beppe Grillo ætlar að knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB og evruna
Beppe Grillo, leiðtogi 5-stjörnu-hreyfingarinnar á Ítalíu, sigurvegara kosninganna í febrúar 2013 ætlar að beita sér fyrir söfnun 500.000 undirskrifta til að knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslu á Ítalíu um ESB og evruna. Grillo sem er í stjórnarandstöðu á ítalska þinginu ætlar að þvinga fram þjóðaratk...