Mánudagurinn 16. desember 2019

Grikkland: Ágreiningur um frekari niðurskurð er enn óleystur


12. ágúst 2012 klukkan 09:56
Antonis Samaras

Þótt fréttir fyrir skömmu hafi bent til þess að stjórnarflokkarnir í Grikklandi hafi náð samkomulagi sín í milli um 11,5 milljarða niðurskurð opinberra útgjalda á árunum 2013 og 2014 er ljóst að svo er ekki. Ekathimerini, gríski vefmiðillinn, segir að Antonis Samaras, forsætisráðherra, standi frammi fyrir erfiðum ákvörðunum á næstunni við að ná samkomulagi milli stjórnarflokkanna um endanlega útfærslu þess niðurskurðar og hins vegar að sannfæra lánardrottna Grikklands um að Grikkir muni standa við þær skuldbindingar en jafnframt að halda opinni leið til þess að endursemja um lánaskilmála.

Ágreiningurinn stendur um hvernig eigi að fækka opinberum starfsmönnum og þar með skera niður launakostnað gríska ríkisins. Fotis Kouvelis, leiðtogi Lýðræðislega vinstri flokksins hefur algerlega hafnað hugmyndum, sem fyrir liggja um það á þeirri forsendu að þær hafi verið reyndar og gangi ekki upp. Ekathimerini segir að jafnvel þótt samkomulag takist milli flokksleiðtoganna eigi þeir eftir að ná aðgerðum í gegnum gríska þingið.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS