Fimmtudagurinn 20. júní 2013

Ítalía: Smygl á verðmætum úr landi stóreykst - peningahundar þefa uppi smyglara á flugvöllum


12. ágúst 2012 klukkan 11:04

Efnahagsbrotalögregla Ítalíu skýrði frá því laugardaginn 11. ágúst að hún hefði aldrei fyrr gert jafnmikið upptækt af reiðufé, gulli og silfri sem flytja átti ólöglega úr landi. Alls hefur lögreglan á þessu ári lagt hald á vermæti sem virt eru á 41 milljarð evra í höfnum og flughöfnum landsins, er það 78% aukning á einu ári.

Úr flugstöðinni í Róm.

Frá upphafi þessa árs hefur ítalska efnahagsbrotalögreglan ekki aðeins lagt hald á mikið magn reiðufjár sem eigendur reyndu að flytja ólöglega úr landi heldur einnig 88 kg af gulli (45 kg árið 2011) og 570 kg af silfri (170 kg á sama tíma árið 2011). Að ítölskum lögum ber að tilkynna ef menn ætla að flytja úr landi meira en 10.000 evrur í reiðufé eða dýrum málmum. Lögreglan telur að fjölgun afbrota á þessu sviði megi rekja til hækkunar á sköttum á Ítalíu, breytinga á efnahagsástandi og tilrauna til peningaþvættis.

Í skýrslu lögreglunnar er sagt frá ýmsum atvikum úr starfi hennar. Á flugvellinum Rome-Fiumicino var kínverskur maður handtekinn með sígarettupakka sem fylltir voru með 500 evru seðlum, alls 200.000 evrur. Þá hafði Ítali sem stundar viðskipti í Eþíópíu falið 122.000 evrur í ferðatösku með tvöföldum botni.

Eigandi matvöruverslunar í Varese, skammt frá Mílanó, var tekinn í landamærastöðinni Ponte Chiasso á leið til Sviss þegar hann fór þar um ásamt dóttur sinni og 50 kg af gulli sem hann hafði falið undir barnastólnum.

Lögreglan hefur þjálfað hunda, peningahunda, til að þefa uppi peningaseðla og mynt. Tango, labrador-hundur, í flugstöðinni í Mílano-Malpensa fann 424.000 evrur faldar í fatatösku í eign Sri Lanka-manns. Bróðir Tangos, Cash, leiddi lögregluna að eftirlaunaþega sem vildi laumast með 242.000 evrur úr landi.

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Styrmi Gunnarsson Pistill

Olíuvinnsla við Ísland (II): Þjónusta við orkuþríhyrning norður af Íslandi opnar ný tækifæri

Í BA-ritgerð í hagfræði, sem Hildur Sturlu­dóttir skrifaði við Háskóla Íslands og birt var í febrúar á þessu ári er ferlinu við hugsanlega olíuvinnslu lýst með eftirfarandi hætti: "Fyrsta stigið kallast frumathugunarstig.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Ástralía: Fékk höfuðhögg tók að tala ensku með frönskum hreim

Áströlsk kona tók að tala ensku með frönskum hreim eftir að hún vaknaði eftir umferðarslys þar sem hún hlaut höfuðhögg. Um er að ræða sjaldgæft heilkenni sem um 60 manns hafa greinst með á 100 árum segir í blaðinu Le Figaro. Leanne Rowe hefur aldrei farið til Frakklands og á enga franska vini.

Grikkland: Leiðtogar stjórnar­flokka funda síðdegis um ERT

Leiðtogar stjórnar­flokkanna þriggja á Grikklandi koma saman til fundar síðdegis í dag til þess að reyna að ná samkomulagi um örlög og framtíð gríska ríkisútvarpsins-sjónvarps. Samkvæmt úrskurði stjórnlagadómstóls Grikklands sl. mánudag hafði ríkis­stjórnin leyfi til að loka ERT en ekki að slökkva á útsendingu. Stjórnar­flokkarnir hver um sig túlka þessa niðurstöðu eins og þeim hentar.

NSA og FBI hafa hindrað rúmlega 50 tilraunir til hryðjuverka síðan 11. september 2001

Þjóðaröryggis­stofnun Bandaríkjanna (NSA) og Alríkislög­regla Bandaríkjanna (FBI) hafa að eigin sögn komið í veg fyrir að minnsta kosti 50 tilraunir til hryðjuverka frá 11. september 2011. Google-fyrirtækið hefur óskað eftir að fá að birta hvernig þátttöku þess í verkefnum gegn hryðjuverkum hefur veri...

Forseti Kýpur fer fram á allsherjar endurskoðun björgunaraðgerða

Nikos Anastasiades, forseti Kýpur hefur skrifað leiðtogum evru­svæðisins bréf og farið fram á allsherjar endurskoðun á þeim skilmálum, sem Kýpur tók á sig vegna björgunarláns að upphæð 10 milljarðar evra. Í bréfinu segir forsetinn að Kýpur geti ekki uppfyllt þessa skilmála vegna þess að aðgerðirnar hafi skaðað efnahag landsins og bankakerfið meira en búizt var við.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS