Fimmtudagurinn 23. maí 2013

Sviss: Naut drepur 71 árs bónda


17. ágúst 2012 klukkan 11:39
Svissneskt Angus-naut

Naut drap 71 árs bónda að kvöldi fimmtudags 16. ágúst í Saint Gallen kantónu í Sviss. Hann var að reka kýr sínar og tvö naut úr fjósi þeirra í Bichwil-Oberwil héraði.

Eldra nautið, þriggja og hálfs árs, 450 kíló, fór á bakvið fjósið. Þegar bóndinn ætlaði að reka það til baka réðst nautið til atlögu.

Nágranni kom á vettvang og reyndi að bjarga lífi bóndans áður en björgunarþyrla með lækni kom á vettvang. Lést bóndinn í höndum bráðalæknisins.

Veiðimaður skaut nautið. Á vefsíðu blaðsins Blick má sjá myndskeið sem sýnir þegar dauðu dýrinu er ekið á brott á traktorsvagni.

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Styrmi Gunnarsson Pistill

Olíuvinnsla við Ísland (II): Þjónusta við orkuþríhyrning norður af Íslandi opnar ný tækifæri

Í BA-ritgerð í hagfræði, sem Hildur Sturlu­dóttir skrifaði við Háskóla Íslands og birt var í febrúar á þessu ári er ferlinu við hugsanlega olíuvinnslu lýst með eftirfarandi hætti: "Fyrsta stigið kallast frumathugunarstig.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Stokkhólmur: Kveikt í bílum-íkveikjur í níu borgarhverfum-vandamál tengd innflytjendum

Í gærkvöldi og í morgun var kveikt í bílum í Stokkhólmi og ólæti breddust út til margra hverfa borgarinnar að því er fram kemur í Financial Times, sem segir að þetta hafi gerzt þrjá daga í röð. Lög­reglan í Stokkhólmi hefur handtekið einhverja og segir stöðuna flókna vegna fjölda hverfa en bendir á, að staðan sé rólegri í Husby, hverfi, þar sem margi innflytjendur eru saman komnir.

Ítalía: Milljónir hafa ekki efni á að hita heimili sín eða borða kjöt

Milljónir Ítala hafa ekki efni á að hita upp heimili sín eða borða kjöt segir í nýrri skýrslu frá hagstofu Ítalíu, ISTAT. Efnahagslægð, sem staðið hefur í tvö ár hefur komið þungt niður á almennum borgurum, sem ganga meira og meira á sparnað sinn. Fjöldi þess fólks sem stendur svo höllum fæti, sem h...

Ný ríkis­stjórn gerir hlé á aðildarviðræðum- nýjar viðræður ekki án þjóðar­atkvæða­greiðslu

Af fréttum Morgunblaðsins í dag má ráða að ný ríkis­stjórn muni gera hlé á aðildarviðræðum Íslands við Evrópu­sambandið og að þær verði ekki teknar upp að nýju nema að undangenginni þjóðar­atkvæða­greiðslu. Samkvæmt heimildum Evrópu­vaktarinnar verður gerð úttekt á stöðu viðræðnanna eins og þær standa nú og stöðu mála innan Evrópu­sambandsins.

Þrír fyrrverandi framkvæmda­stjórar Saab handteknir - grunaðir um skattsvik

Þrír fyrrverandi framkvæmda­stjórar Saab-bílasmiðjunnar í Svíþjóð hafa verið handteknir í Svíþjóð vegna gruns um bókhaldsbrot. Olof Sahlgren saksóknari telur að þremenningarnir hafi gerst sekir um alvarlegar tilraunir til að skjóta sér undan skattayfirvöldum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS