
Frakkar hafa hvað eftir annað vikið gagnrýnisorðum að Catherine Ashton barónessu, utanríkisráðherra ESB, frá því að hún tók við embætti sínu árið 2009. Nú hefur François Loncle, þingmaður sósíalista og flokksbróðir Hollandes forseta, lýst barónessuna „gagnslausa“ í embætti sínu. Hún ætti að leggja sig meira fram um að neyða Rússa til þátttöku í friðaraðgerðum í Sýrlandi.
„Frakkar geta ekki gert allt einir,“ sagði Loncle, fyrrverandi ráðherra sem á nú sæti í utanríkismálanefnd franska þingsins, við franska útvarpsstöð föstudaginn 17. ágúst:
„Það verður að vinna að friði með öðrum aðildarríkjum öryggisráðs SÞ sem eru sammála um nauðsyn þess að ljúka glæpaverkunum sem nú eru unnin í Sýrlandi.
Í þessu samhengi er óhjákvæmilegt að velta enn einu fyrir sér hve utanríkisþjónusta ESB stendur höllum fæti og gagnsleysi Madame Ashton sem segir aldrei neitt og gerir strangt til tekið ekkert.“
Barónessa Ashton sat á breska þinginu fyrir Verkamannaflokkinn án þess að vekja þar sérstaka athygli.
Heimild: AFP-fréttastofan
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Finnland: Verður rússneska opinbert tungumál minnihluta
Nú eru um 62 þúsund rússneskumælandi í Finnlandi en gert er ráð fyrir að þeir verði orðnir um 240 þúsund árið 2050. Þetta þýðir að á 40 árum verða rússneskumælandi Finnar jafnmargir og sænskumælandi Finnar eru í dag. Fjöldi rússneskumælandi Finna hefur tvöfaldast á einum áratug. Hér er átt við fólk,...
ESB: Frakkar verða að breyta um stefnu eða sæta refsiaðgerðum ella segir fulltrúi Þýzkalands
Fulltrúi Þýzkalands í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, Guenther Oettinger, sagði í gær að Frakkar yrðu að koma fram umbótum á lífeyriskerfi sínu og frelsisvæða vinnumarkað sinn eða horfast í augu við refsiaðgerðir af hálfu ESB. Í síðustu viku veitti ESB Frakklandi tveggja ára frest til að koma fj...
Þýzka timaritið Der Spiegel segir að það sé að verða til „týnd kynslóð“ í Evrópu. Hin pólitíska elíta á meginlandinu hafi frekar viljað standa í gömlu hugmyndafræðilegu stríði en snúa sér að því verki að koma upp árangursríkri menntun og þjálfun, sem geri ungu fólki í Suður-Evrópu kleift að finna vinnu við sitt hæfi.
Hæðst að skriffinnum ESB vegna ólívuolíunnar - sagt minna á bannið við bognum agúrkum
Ákvörðun nefndar á vegum framkvæmdastjórnar ESB um að frá 1. janúar 2014 skuli ólívuolía borin fram í lokuðum flöskum á borð veitingastaða þykir mörgum hin undarlegasta frá því að lagt var bann við bognum agúrkum sá sínum tíma segir í The Guardian mánudaginn 20. maí. Blaðið segir að hæðst sé að sk...