Laugardagurinn 25. maí 2013

Brezk þing­nefnd gagnrýnir Diamond harkalega-Englandsbanki „barnalegur“ og „aðgerðarlaus“


18. ágúst 2012 klukkan 10:10
Bob Diamond

Brezk þingnefnd sakar Bob Diamond, fyrrverandi forstjóra Barclays-banka um að reyna að afvegaleiða brezka þingið í rannsókn á Libor-vaxta hneykslinu, sem byrjaði í Barclays. Hann hafi ekki verið hreinskilinn, hafi ekki talað út og hafi ekki uppfyllt þær kröfur, sem brezka þingið geri til þeirra, sem mæti í yfirheyrslu hjá þingmönnum. Þessar ásakanir koma fram í skýrslu um málið.

Daily Telegraph segir að þessar niðurstöður valdi því að erfitt verði fyrir Diamond að fá sambærilegt starf aftur í Bretlandi.

Í skýrslunni kemur fram, að Barclays hafi starfaði árum saman án nægilegs innra eftirlits, æðstu stjórnendur bankans hefðu átt að taka í taumana fyrr, að FSA, brezka fjármálaeftirlitið hafi látið undir höfuð leggjast að fylgja eftir orðrómi um málið og að Englandsbanki hafi verið barnalegur (naive) og aðgerðarlaus.

Traust almennings til banka hefur aldrei verið minna, segir Andrew Tyrie, formaður þingnefndarinnar og bætir við að brýnt sé að bæta starfshætti banka og eftirlit með þeim til þess að endurvekja traust almennings og markaða til þeirra.

Þingmennirnir komust að þeirri niðurstöðu, að Diamond hefði valið vandlega það sem hann sagði og að lýsing hans á málinu væri óskiljanleg.. Diamond segist hafa orðið fyrir vonbrigðum með skýrsluna og sé ósammála niðurstöðunum.

Sir Mervyn King Englandsbankastjóri sleppur ekki við gagnrýni. Hann hafði haft orð um að hann skildi ekki hvers vegna miðlarar hefðu falsað vextina með svo lágum tölum. Í skýrslunni segir að hann eigi að vita betur. Lágar tölur í þessum efnum geti skilað miklum hagnaði.

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Styrmi Gunnarsson Pistill

Olíuvinnsla við Ísland (II): Þjónusta við orkuþríhyrning norður af Íslandi opnar ný tækifæri

Í BA-ritgerð í hagfræði, sem Hildur Sturlu­dóttir skrifaði við Háskóla Íslands og birt var í febrúar á þessu ári er ferlinu við hugsanlega olíuvinnslu lýst með eftirfarandi hætti: "Fyrsta stigið kallast frumathugunarstig.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Ritað undir frí­verslunarsamning Kína og Sviss

Ritað hefur verið undr frí­verslunarsamning Kína og Sviss og segir BBC að hann kunni að verða „first such deal with a major Western economy“, fyrsti slíkur samningur Kína við öflugt vestrænt efnahagsríki.

Ítalía: Beppe Grillo ætlar að knýja fram þjóðar­atkvæða­greiðslu um ESB og evruna

Beppe Grillo, leiðtogi 5-stjörnu-hreyfingarinnar á Ítalíu, sigurvegara kosninganna í febrúar 2013 ætlar að beita sér fyrir söfnun 500.000 undirskrifta til að knýja fram þjóðar­atkvæða­greiðslu á Ítalíu um ESB og evruna. Grillo sem er í stjórnar­andstöðu á ítalska þinginu ætlar að þvinga fram þjóðaratk...

Dansmærin Ruby breytir framburði sínum í máli sem tengist Berlusconi

Ruby, unga stúlkan frá Marokkó, sem er höfuðpersónan í málaferlum gegn Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætis­ráðherra Ítalíu, og félögum hans fyrir að hafa greitt fyrir kynlíf með henni sagði fyrir rétti í Mílanó föstudaginn 24. maí að hún hefði búið til sögur um svæsnar kvöldskemmtanir með „Cavali...

Kýpur sakar þríeykið um rangfærslur í skýrslu um peningaþvætti

Kýpversk stjórnvöld saka þríeykið, ESB/AGS/SE um að rangfæra upplýsngar um peingaþvætti í bönkum á Kýpur í nýrri skýrslu, sem sagt hefur verið frá hér á Evrópu­vaktinni. Þau segja að ályktanir, sem séu dregnar í skýrslunni séu tilefnislausar.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS