Fimmtudagurinn 20. júní 2013

Starfsmaður Deloitte í Bandaríkjunum fyrirfór sér-Fjölskyldan tengir lát hans máli Standard Chartered


19. ágúst 2012 klukkan 08:49

Háttsettur starfsmaður Deloitte, endurskoðunarfyrirtækisins í Bandaríkjunum framdi sjálfsmorð, sem fjölskylda hans tengir ákærum á hendur Standard Chartered bankanum vestan hafs. Um er að ræða Daniel Pirron, sem fannst látinn í bíl í bílastæðahúsi skammt frá heimili hans í Connecticut. Hinn 6. ágúst sl. lagði fjármálaeftirlit New York ríkis og Connecticut fram ásökun á hendur Deloitte fyrir að hafa aðstoðað Standard Chartered við að villa um fyrir yfirvöldum vegna viðskipta við Íran. Sjö dögum síðar fyrirfór Pirron sér

Daily Telegraph segir frá málinu og segir að bróðir Pirron, Mike, hafi sagt opinberlega að fjölskyldan tengi þessi tvö mál saman. Daniel Pirron hafi varað dætur sínar við daginn áður að það væru mikil vandamál framundan. Mike segir bróður sinn ekki hafa rætt málið við sig en sagt að það væru mikil vandamál tengd þessu máli í London. Hann hafi greinilega verið kvíðinn vegna málsins þegar það kæmi fram. Um of margar tilviljanir sé að ræða. David hafi starfað í lögfræðideildinni, hann hafi farið til London. Hann hafi sagt fyrirtækið vera undir miklum þrýstingi. Hann hafi verið með dóttur sinni daginn áður,, hún hafi sagt hann vera kvíðinn og hann hafi alltaf verið að fara á blaðasölu til þess að sjá hvort einhver frétt hefði komið sem tengdist Deloitte.

Fjölskyldan hefur ráðið lögfræðing til þess að reyna að endurheimta fartölvu Davids sem Deloitte neitar að afhenda. Fyrirtækið segir að David Pirron hafi ekkert haft með mál Standard Chartered að gera.

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Styrmi Gunnarsson Pistill

Olíuvinnsla við Ísland (II): Þjónusta við orkuþríhyrning norður af Íslandi opnar ný tækifæri

Í BA-ritgerð í hagfræði, sem Hildur Sturlu­dóttir skrifaði við Háskóla Íslands og birt var í febrúar á þessu ári er ferlinu við hugsanlega olíuvinnslu lýst með eftirfarandi hætti: "Fyrsta stigið kallast frumathugunarstig.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

FBI tekin til við að nota drón til eftirlits í Bandaríkjunum

Robert Mueller, for­stjóri Alríkislög­reglu Bandaríkjanna (FBI), hefur viðurkennt að lög­reglan noti drón, fjarstýrð flugför, til eftirlits í Bandaríkjunum. Þá vinni ýmsar löggæslu­stofnanir að því að efla getu sína til að nýta drón í störfum sínum.

Assange segist vinna að því að tryggja Snowden hæli á Íslandi

Julian Assange, stofnandi WikiLeaks, sem dvelst sem pólitískur flóttamaður í sendiráði Ekvador í London, segir við BBC að hann reyni að koma á samkomulagi sem geri Edward Snowden, öryggisverktaka frá Bandaríkjunum sem lak trúnaðarupplýsingum og dvelst nú í Hong Kong, kleift að fá hæli á Íslandi.

Finnland: Leyniþjónustan vill almenna heimild til að hlera símtöl og fylgjast með netinu

Finnska leyniþjónustan vill að sögn Yle fá heimild til að hlera öll símtöl og fylgjast með allri umferð á netinu að því er fram kemur á euobserver. Antti Pelttari, forstöðumaður leyniþjónustunnar hvetur til þess að stofnunin fá slíka heimild án þess að þurfa að leita leyfis í hverju tilviki.

Hluta­bréf lækka um allan heim í kjölfar tilkynningar Seðlabanka Bandaríkjanna

Seðlabanki Bandaríkjanna tilkynnt í gær, að bankinn mundi smátt og smátt draga úr kaupum á markaði, sem hafa numið um 85 milljörðum dollara í hverjum mánuði. Afleiðingin af þessari tilkynningu varð sú, að hluta­bréf voru seld í stórum stíl í Bandaríkjunum síðdegis í gær, sú sala breiddist út til Asíu í nótt og hélt áfram í Evrópu í morgun að því er fram kemur í Financial Times.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS