Fimmtudagurinn 20. júní 2013

Rothschild lávarður tekur stöðu gegn evrunni


19. ágúst 2012 klukkan 08:58

Rothschild, lávarður, sem er meðlimur hinnar þekktu bankafjölskyldu, sem ber sama nafn hefur tekið 130 milljón punda stöðu gegn evrunni, að því er fram kemur í Daily Telegraph. Þetta gerir hann í gegnum RIT Capital Partners, sem er tæplega tveggja milljarða punda fjárfestingarsjóður, en lávarðurinn er starfandi stjórnarformaður sjóðsins.

Blaðið segir að sú staðreynd að svo þekktur fyrrverandi fjárfestingarbankastarfsmaður og meðlimur Rothschild-fjölskyldunnar taki slíka stöðu gefi vísbendingu um neikvæða afstöðu til evrunnar.

Heimildarmenn Daily Telegraph segja að þessi stöðutaka sé ekki til marks um grundvallarafstöðu lávarðarins til evrunnar sem gjaldmiðils heldur raunsætt mat á gjaldmiðli sem sé tiltölulega veikur.

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Styrmi Gunnarsson Pistill

Olíuvinnsla við Ísland (II): Þjónusta við orkuþríhyrning norður af Íslandi opnar ný tækifæri

Í BA-ritgerð í hagfræði, sem Hildur Sturlu­dóttir skrifaði við Háskóla Íslands og birt var í febrúar á þessu ári er ferlinu við hugsanlega olíuvinnslu lýst með eftirfarandi hætti: "Fyrsta stigið kallast frumathugunarstig.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Ástralía: Fékk höfuðhögg tók að tala ensku með frönskum hreim

Áströlsk kona tók að tala ensku með frönskum hreim eftir að hún vaknaði eftir umferðarslys þar sem hún hlaut höfuðhögg. Um er að ræða sjaldgæft heilkenni sem um 60 manns hafa greinst með á 100 árum segir í blaðinu Le Figaro. Leanne Rowe hefur aldrei farið til Frakklands og á enga franska vini.

Grikkland: Leiðtogar stjórnar­flokka funda síðdegis um ERT

Leiðtogar stjórnar­flokkanna þriggja á Grikklandi koma saman til fundar síðdegis í dag til þess að reyna að ná samkomulagi um örlög og framtíð gríska ríkisútvarpsins-sjónvarps. Samkvæmt úrskurði stjórnlagadómstóls Grikklands sl. mánudag hafði ríkis­stjórnin leyfi til að loka ERT en ekki að slökkva á útsendingu. Stjórnar­flokkarnir hver um sig túlka þessa niðurstöðu eins og þeim hentar.

NSA og FBI hafa hindrað rúmlega 50 tilraunir til hryðjuverka síðan 11. september 2001

Þjóðaröryggis­stofnun Bandaríkjanna (NSA) og Alríkislög­regla Bandaríkjanna (FBI) hafa að eigin sögn komið í veg fyrir að minnsta kosti 50 tilraunir til hryðjuverka frá 11. september 2011. Google-fyrirtækið hefur óskað eftir að fá að birta hvernig þátttöku þess í verkefnum gegn hryðjuverkum hefur veri...

Forseti Kýpur fer fram á allsherjar endurskoðun björgunaraðgerða

Nikos Anastasiades, forseti Kýpur hefur skrifað leiðtogum evru­svæðisins bréf og farið fram á allsherjar endurskoðun á þeim skilmálum, sem Kýpur tók á sig vegna björgunarláns að upphæð 10 milljarðar evra. Í bréfinu segir forsetinn að Kýpur geti ekki uppfyllt þessa skilmála vegna þess að aðgerðirnar hafi skaðað efnahag landsins og bankakerfið meira en búizt var við.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS