Fimmtudagurinn 20. júní 2013

Barents Observer: Olíuleit við Jan Mayen veldur áhyggjum umhverfisyfirvalda í Noregi


20. ágúst 2012 klukkan 09:36
BarentsObserver

Norðmenn hafa lokið mikilvægum áfanga í rannsóknum á hafsbotni við Jan Mayen að því er fram kemur í Barents Observer. Í marz 2011 tilkynnti orkumálaráðuneytið í Noregi að 180 milljónum norskra króna yrði varið í að leita að olíu og gasi á þessu svæði á árunum 2012-2014. Hins vegar hafa engin leyfi verið gefin út til olíuleitar á svæðinu.

Umhverfisyfirvöld í Noregi hafa hins vegar áhyggjur af því að boranir á svæðinu geti haft neikvæð áhrif á náttúru norðurslóða og telja, að ekki hafi verið gert rað fyrir nægilegum öryggisviðbúnaði. Jafnvel minni háttar olíuleki geti haft víðtæk áhrif. Þess vegna sé nauðsynlegt að afla aukinna upplýsinga um hafsbotninn og fiskistofna og björgunaraðstaða verði að vera fyrir hendi.

Barents Observer bendir á að hafsvæðið við Jan Mayen sé auðugt af fiski og fuglalíf þar sé mikið.

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Ástralía: Fékk höfuðhögg tók að tala ensku með frönskum hreim

Áströlsk kona tók að tala ensku með frönskum hreim eftir að hún vaknaði eftir umferðarslys þar sem hún hlaut höfuðhögg. Um er að ræða sjaldgæft heilkenni sem um 60 manns hafa greinst með á 100 árum segir í blaðinu Le Figaro. Leanne Rowe hefur aldrei farið til Frakklands og á enga franska vini.

Grikkland: Leiðtogar stjórnar­flokka funda síðdegis um ERT

Leiðtogar stjórnar­flokkanna þriggja á Grikklandi koma saman til fundar síðdegis í dag til þess að reyna að ná samkomulagi um örlög og framtíð gríska ríkisútvarpsins-sjónvarps. Samkvæmt úrskurði stjórnlagadómstóls Grikklands sl. mánudag hafði ríkis­stjórnin leyfi til að loka ERT en ekki að slökkva á útsendingu. Stjórnar­flokkarnir hver um sig túlka þessa niðurstöðu eins og þeim hentar.

NSA og FBI hafa hindrað rúmlega 50 tilraunir til hryðjuverka síðan 11. september 2001

Þjóðaröryggis­stofnun Bandaríkjanna (NSA) og Alríkislög­regla Bandaríkjanna (FBI) hafa að eigin sögn komið í veg fyrir að minnsta kosti 50 tilraunir til hryðjuverka frá 11. september 2011. Google-fyrirtækið hefur óskað eftir að fá að birta hvernig þátttöku þess í verkefnum gegn hryðjuverkum hefur veri...

Forseti Kýpur fer fram á allsherjar endurskoðun björgunaraðgerða

Nikos Anastasiades, forseti Kýpur hefur skrifað leiðtogum evru­svæðisins bréf og farið fram á allsherjar endurskoðun á þeim skilmálum, sem Kýpur tók á sig vegna björgunarláns að upphæð 10 milljarðar evra. Í bréfinu segir forsetinn að Kýpur geti ekki uppfyllt þessa skilmála vegna þess að aðgerðirnar hafi skaðað efnahag landsins og bankakerfið meira en búizt var við.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS