Laugardagurinn 25. maí 2013

Finnland: Titringur vegna ummæla utanríkis­ráðherrans um evruna


20. ágúst 2012 klukkan 09:47

Ummæli Erkki Tuomioja, utanríkisráðherra Finnlands um nauðsyn þess að Finnar búi sig undir splundrun evrusvæðisins hafa valdið titringi bæði innan Finnlands og utan. Utanríkisráðherrann er jafnaðarmaður en ráðherra Evrópumála og utanríkisviðskipta Alexander Stubb er í Sameinaða þjóðaflokknum. Hann hefur svarað ummælum utanríkisráðherrans með því að segja, að Finnar standi 100% að baki evrunni og vilji finna lausn á evrukreppunni. Hann segist hafa eytt öllum föstudagsmorgni í síðustu viku við að útskýra ummæli utanríkisráðherrans. Tuomioja sjálfur segir að fyrirsögn Daily Telegraph á viðtalinu við hann hafi verið villandi.

Hins vegar segir Miapetra Kumpula-Natri, sem er jafnaðarmaður og fomaður svonefndrar stórnefndar finnska þingsins að nú sé nóg komið af neyðarlánum. Fólkið á götunni telur að það verði að vera einhver takmörk, segir hún. Ég skal ekki segja hvort þau takmörk eru 10% af vergri landsframleiðslu eða eitthvað annað. Það hefur ekki verið ákveðið en það er augljóst að lítið land getur ekki hjálpað stóru löndunum til eilífðar segir Miapetra.

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Grikkland: Flótti frá PASOK

Fyrrverandi menntamála­ráðherra Grikklands, Anna Diamantopoulo, sem er úr PASOK, flokki sósíalista, sem stjórnaði Grikklandi í upphafi grísku kreppunnar, lýsti í gær yfir áformum um að stofna nýjan flokk. Hún sagði í viðtali við gríska ríkissjónvarpið að flokkur sósíalista væri kominn að leiðarlokum. "

Forseti Írlands: ESB endurspeglar ekki beztu hagsmuni fólksins í Evrópu

Michael D Higgins, forseti Írlands sagði í gær á alþjólegri ráð­stefnu háskóla í Evrópu, sem haldin er í Háskóla Írlands (NUI Galway), að Evrópu­sambandið endurspegli ekki beztu hagsmuni fólksins í Evrópu. Hann gagnrýndi ESB fyrir að hafa of litla trú á vitsmunalegum hefðum (intellectual tradition) Evrópu.

Franskur dómstóll: Lagarde skal ekki hafa stöðu grunaðs manns

Franskur dómstóll hefur komist að þeirri niðurstöðu, að Christine Lagarde, for­stjóri AGS og fyrrum fjármála­ráðherra Frakklands skuli ekki hafa stöðu grunaðs manns í hneykslismáli, sem varðar 400 milljón evra mútu­greiðslur til stuðningsmann Nicholas Sarkozy, fyrrum forseta Frakklands. Þetta kemur fram í Financial Times.

Stokkhólmur: Ástandið að róast en samt kveikt í bílum í gærkvöldi

Það var heldur rólegra ástand í úthverfum Stokkhólms í gærkvöldi, föstudagskvöld, lög­reglan fékk liðstyrk frá Malmö og Gautaborg, sem virðist hafa dugað að verulegu leyti. Þó var kveikt í tveimur bílum. Og ríkis­stjórnin hélt neyðarfund. Í Orebro í miðhluta Svíþjóðar kveiktu 25 grímuklædd ungmenni í þremur bílum, kveiktu í skóla og reyndu að bera eld að lög­reglustöð.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS