Euobserver segir að mikil fundarhöld verði í Evrópu í þessari viku vegna Grikklands. Kjarninn í þeim umræðum snýst um óskir Grikkja, sem ekki hafa verið settar formlega fram, um að dreifa niðurskurði ríkisútgjalda upp á 11,5 milljarða evra á lengri tíma eða til ársins 2016 í stað 2014 á þeirri forsendu að efnahagslægðin í Grikklandi hafi orðið dýpri en þegar þeir lánaskilmálar voru undirritaðir.
Jean-Claude Juncker, forsætisráðherra Lúxemborgar og formaður Evruhópsins fer til Aþenu á miðvikudag til fundar við Samaras. Angela Merkel og Francois Hollande hittast í Berlín á fimmtudag.
Wolfgang Schauble, fjármálaráðherra Þýzkalands sagði hins vegar um helgina að það sé ekki hægt að halda áfram að kasta peningum í botnlausa hít. Volker Kauder, formaður þingflokks Kristilegra demókrata segir að það sé ekki meira svigrúm, hvorki tímalega né efnislega.
Der Spiegel segir að dreifing niðurskurðar á lengri tíma þýði að Grikkir þurfi að finna 2,5 milljarða evra til viðbótar.
Hollande vill gefa Grikkjum meira svigrúm. Merkel segist ekki geta komið þriðja björgunarpakkanum í gegn í þýzka þinginu.
Evruland er nýlenda Þýskalands
Nú þegar evran er að ná inn á á annan tuginn í vegferð sinni er margt að opinberast og raungerast með öðrum hætti en væntingar stóðu upphaflega til . Flest sem bendir nú til þess að hún muni ekki ná því að fylla tvo tugi og líði undir lok nú á næstu árum. Það dauðastríð mun ekki taka langa...
Gunnar Bragi um IPA-styrki: „...geta nýst að einhverju leyti sem EES-ríki...“
Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, gefur upplýsingar um meðferð svonefndra IPA-styrkja frá Evrópusambandinu, sem ætlaðir eru til að laga stjórnkerfi Íslands að regluverki ESB í samtali við Fréttablaðið í dag og segir: "Það má skipta þessum verkefnum, sem um ræðir í þrennt:; Í fyrsta lagi ...
Ástralía: Fékk höfuðhögg tók að tala ensku með frönskum hreim
Áströlsk kona tók að tala ensku með frönskum hreim eftir að hún vaknaði eftir umferðarslys þar sem hún hlaut höfuðhögg. Um er að ræða sjaldgæft heilkenni sem um 60 manns hafa greinst með á 100 árum segir í blaðinu Le Figaro. Leanne Rowe hefur aldrei farið til Frakklands og á enga franska vini.
Grikkland: Leiðtogar stjórnarflokka funda síðdegis um ERT
Leiðtogar stjórnarflokkanna þriggja á Grikklandi koma saman til fundar síðdegis í dag til þess að reyna að ná samkomulagi um örlög og framtíð gríska ríkisútvarpsins-sjónvarps. Samkvæmt úrskurði stjórnlagadómstóls Grikklands sl. mánudag hafði ríkisstjórnin leyfi til að loka ERT en ekki að slökkva á útsendingu. Stjórnarflokkarnir hver um sig túlka þessa niðurstöðu eins og þeim hentar.
NSA og FBI hafa hindrað rúmlega 50 tilraunir til hryðjuverka síðan 11. september 2001
Þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna (NSA) og Alríkislögregla Bandaríkjanna (FBI) hafa að eigin sögn komið í veg fyrir að minnsta kosti 50 tilraunir til hryðjuverka frá 11. september 2011. Google-fyrirtækið hefur óskað eftir að fá að birta hvernig þátttöku þess í verkefnum gegn hryðjuverkum hefur veri...