Þjóðverjar slógu mánudaginn 20. ágúst á vonir um að Seðlabanki Evrópu (SE) mundi grípa til öflugra aðgerða í því skyni að lækka lántökukostnað innan evru-svæðisins og höfnuðu öllum vangaveltum um að þáttaskil yrðu í vikunni í leitinni að bráðaleið út úr skuldavanda Grikkja.
Viðskipti á mörkuðum báru þess merki að morgni mánudags 20. ágúst að menn tryðu því sem sagði í Der Spiegel um helgina að SE hefði á prjónunum áform um að leggja fram fjármuni til að létta undir með skuldsettum ríkjum. Spiegel nefndi enga heimildarmenn fyrir frétt sinni um að SE mundi hefja kaup á ríkisskuldabréfum á fjármálamörkuðum til að aðstoða Spánverja og Ítali og draga úr vangaveltum um upplausn evru-samstarfsins.
Martin Kotthaus, upplýsingafulltrúi hjá Wolfgang Schäuble, fjármálaráðherra Þýskalands, batt snarlega enda á alla bjartsýni á mörkuðum. Hann sagðist ekki vita um neitt sem staðfesti fréttina í Der Spiegel.
Frá SE sem lætur mjög sjaldan í sér heyra vegna frétta fjölmiðla bárust þau boð að það væri „einfaldlega fráleitt að segja frá ákvörðunum sem hefðu ekki enn verið teknar“. Það væri einnig rangt að hafa uppi getgátur um til hvaða ráða SE kynni að grípa í framtíðinni.
Eftir þessi ummæli talsmanns SE lækkaði risið á mörkuðunum og gengi evrunnar lækkaði að nýju gagnvart dollar eftir dálitla hækkun fyrr um daginn.
Þá varð það ekki til að styrkja evruna að þau boð bárust frá hinum valdamikla Seðlabanka Þýskalands að hann væri eins og áður andvígur áformum sem Mario Draghi, forseti bankastjórnar SE, kynnti fyrir nokkru um að bankinn mundi aðstoða ríki sem leituðu á náðir ESB.
Antonis Samaras, forsætisráðherra Grikklands, á bókaðan fund hjá Angelu Merkel Þýskalandskanslara, í Berlín föstudaginn 24. ágúst og daginn eftir hjá Françcois Hollande Frakklandsforseta í París. Hann ætlar að ræða við þau tveggja ára frestun aðhaldsaðgerða í Grikklandi.
Steffen Seibert, talsmaður Merkel, varaði fjármálamenn og miðlara við að binda of miklar vonir við þessa fundi.
„Ég get sagt ykkur að þess er ekki að vænta að skýr afstaða verði mótuð eða teknar verði afdrifaríkar ákvarðanir. Það gerist ekki,“ sagði Seibert um fundina tvo. „Skýrsla þríeykisins verður lögð til grundvallar við allar ákvarðanir.“
Þessi skýrsla fulltrúa ESB, SE og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er væntanleg í september.
Heimild: AFP
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Ástralía: Fékk höfuðhögg tók að tala ensku með frönskum hreim
Áströlsk kona tók að tala ensku með frönskum hreim eftir að hún vaknaði eftir umferðarslys þar sem hún hlaut höfuðhögg. Um er að ræða sjaldgæft heilkenni sem um 60 manns hafa greinst með á 100 árum segir í blaðinu Le Figaro. Leanne Rowe hefur aldrei farið til Frakklands og á enga franska vini.
Grikkland: Leiðtogar stjórnarflokka funda síðdegis um ERT
Leiðtogar stjórnarflokkanna þriggja á Grikklandi koma saman til fundar síðdegis í dag til þess að reyna að ná samkomulagi um örlög og framtíð gríska ríkisútvarpsins-sjónvarps. Samkvæmt úrskurði stjórnlagadómstóls Grikklands sl. mánudag hafði ríkisstjórnin leyfi til að loka ERT en ekki að slökkva á útsendingu. Stjórnarflokkarnir hver um sig túlka þessa niðurstöðu eins og þeim hentar.
NSA og FBI hafa hindrað rúmlega 50 tilraunir til hryðjuverka síðan 11. september 2001
Þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna (NSA) og Alríkislögregla Bandaríkjanna (FBI) hafa að eigin sögn komið í veg fyrir að minnsta kosti 50 tilraunir til hryðjuverka frá 11. september 2011. Google-fyrirtækið hefur óskað eftir að fá að birta hvernig þátttöku þess í verkefnum gegn hryðjuverkum hefur veri...
Forseti Kýpur fer fram á allsherjar endurskoðun björgunaraðgerða
Nikos Anastasiades, forseti Kýpur hefur skrifað leiðtogum evrusvæðisins bréf og farið fram á allsherjar endurskoðun á þeim skilmálum, sem Kýpur tók á sig vegna björgunarláns að upphæð 10 milljarðar evra. Í bréfinu segir forsetinn að Kýpur geti ekki uppfyllt þessa skilmála vegna þess að aðgerðirnar hafi skaðað efnahag landsins og bankakerfið meira en búizt var við.