Föstudagurinn 5. mars 2021

Grænfriðungar í rússneskum borpalli í Norður-Íshafi


24. ágúst 2012 klukkan 10:35

Sex aðgerðarsinnar Grænfriðunga hafa klifrað upp í rússenska olíuborpall til að mótmæla olíu- og gasvinnslu í Norður-Íshafi. Hópurinn notaði hraðbáta til að komast að Prirazlomnaya-pallinum föstudaginn 24. ágúst. Grænfriðungar segjast hafa vistir til nokkurra daga dvalar.

Grænfriðungar segja að boranir á vegum rússneska orkurisans Gazprom séu „hættulegar“ og þær beri að stöðva. Fyrirtækið hafi ekki gert nægar öryggisráðstafanir til að takast á við olíuleka verði hann á þessu viðkvæma svæði.

Í yfirlýsingu Grænfriðunga segir að þeir hafi notað hraðbáta frá skipi samtakanna til að sigla að borpallinum og kaðla og stiga til að klifra upp eftir honum. Daniel Sandford, fréttaritari BBC í Moskvu, segir að þeir hangi nú í rólum undir pallinum og geti Rússar á pallinum ekki náð til þeirra.

Gazprom er fyrsta rússneska fyrirtækið sem hefur olíuvinnslu í Norður-Íshafi og er stefnt að því að hefja boranir á árinu 2013.

Grænfriðungar klifruðu upp í borpalla vestur af Grænlandi fyrir nokkrum misserum en höfðu ekki erindi sem erfiði.

Heimild: BBC

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bréf Víglundar til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar: Leynimakk við kröfuhafa á svig við neyðarlögin

+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingis­húsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS