Sunnudagurinn 17. janúar 2021

Jens Weidmann: Fjármögnun seðlabanka getur verkað eins og eiturlyf


27. ágúst 2012 klukkan 07:11
Jens Weidmann

Jens Weidmann, aðalbankastjóri þýzka Bundesbank hefur enn einu sinni varað við kaupum Seðlabanka Evrópu á skuldabréfum evruríkja í vanda. Hann segir að í lýðræðisríkjum eigi þjóðþing að taka slíkar ákvarðanir en ekki seðlabankar. Ekki megi vanmeta hættuna á því að fjármögnun seðlabanka geti virkað eins og eiturlyf. Ríkin verði háð þeirri fjármögnun. Hún sé of nálægt því að fjármagna ríki með peningaprentun.

Þetta kemur fram í Daily Telegraph í dag, sem segir jafnframt að Angela Merkel, kanslari, hafi sagt að það væri gott, að Weidmann minni stjórnmálamenn á það aftur og aftur að það geti verið varasamt að ganga of langt með slíkum aðgerðum SE.

Blaðið segir þessi ummæli ýta undir þá skoðun að Þýzkaland kunni að snúast gegn áformum Mario Draghi um kaup á skuldabréfum Spánar og Ítalíu.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS