Þriðjudagurinn 18. júní 2013

Róm: Þjófar stálu helgum dómi tengdum Jóhannesi Páli II. - fleygðu honum í limgerði


29. ágúst 2012 klukkan 17:16

Ítalska lögreglan hefur fundið smáglas með blódropa úr Jóhannesi Páll II. páfa í limgerði við Marina de Cerverteri járnbrautastöðina fyrir norðvestan Róm. Þjófar höfðu stolið bakpoka séra Agustos Baldinis í lest og síðan yfirgefið hana á undan honum.

Þarna hefur blóðdropi úr Jóhannesi Páli II verður settur inn í bókaropnu og er hann geymdur þannig sem heldur dómnur

Blóðdropann sem presturinn var á leið með frá Róm átti að sýna sem helgan dóm í bænum Allumiere um 74 km frá Róm. Presturinn geymdi hin heilaga dropa í bakpoka sínum . Hann tók fyrst eftir hvarfi pokans þegar hann fór úr lestinni. Mundi hann þá eftir þremur mönnum sem höfðu dreift athygli hans með spurningum áður en þeir fóru úr lestinni á næstu stöð á undan honum.

„Ég mátti þola fimm kvalarstundir. Lögreglan sýndi mikið snarræði,“ sagði Baldini við ítölsku Ansa-fréttastofuna. „Blóðið í smáglasinu var sett þar eftir morðtilraunina gegn Wojtyla páfa [hið raunverulega nafn Jóhannesar Páls II. var Karol Wojtyla] hinn 13. maí 1981,“ sagði Baldini. „Lögregluþjónarnir afhentu mér það og frá og með [miðvikudegi] verður hinn helgi dómur til sýnis í Allumiere til minningar um að 25 ár eru liðin frá heimsókn Jóhannesar Páls þangað.“

Lögreglan sagði að þjófarnir hefðu losað sig við smáglasið sem var fest inn í bók og kastað bókinni í limgerðið. Lögregla hefur ekki fundið bakpokann. Óljóst er hvort þjófarnir hafi ætlað að fela hinn helga dóm og sækja hann síðar eða hvort þeir áttuðu sig ekki á hve dýrmætan hlut þeir voru með í höndunum.

Jóhannes Páll II. andaðist eftir langvinn veikindi í aðríl 2005. Hann var tekinn í tölu blessaðra innan katólsku kirkjunnar í maí 2012. Þar með hefur hann lokið þremur skrefum katólsku kikrjunnar af fjórum til að komast í dýrðlingatölu.

Í Karmelklaustrinu í Hafnarfirði er dropi af blóði Jóhannesar Páls II. varðveittur sem helgur dómur.

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Grikkland: Dómstóll frestar lokun ríkisútvarpsins

Stjórnsýsludómstóll Grikklands hefur frestað ákvörðun ríkis­stjórnar landsins um að loka ríkisútvarpinu, ERT. Dómstóllinn sagði mánudaginn 17. júní að ERT gæti starfað áfram þar til nýtt ríkisútvarp kæmi til sögunnar. Deilur hafa verið um lokun ERT síðan Antonis Samaras forsætis­ráðherra tók ákvörðun...

Birgir Ármannsson segir Damanaki kikna undan þrýstingi ESB-þingmanna

Birgir Ármannsson, formaður utanríkis­mála­nefndar alþingis, sagði við fréttastofu ríkisútvarpsins mánudaginn 17. júní að Maria Damanaki, sjávar­útvegs­stjóri ESB, hefði mælt harkalega í garð Íslendinga á ESB-þinginu í síðustu viku vegna þrýstings frá þingmönnum. Sigurður Ingi Jóhannsson sjávar­útvegsráð...

17. júní: Forsætis­ráðherra tekur upp hanskann fyrir forseta - segir ESB verða að sanna sig gagnvart Íslandi

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætis­ráðherra brá skildi fyrir Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, í þjóðhártíðarávarpi sínu á Austurvelli mánudaginn 17. júní þegar hann lýsti undrun yfir að menn hefðu efast um hvort við­eigandi hefði verið fyrir forseta að ræða fullveldismál við þingsetningu. Sig...

Grænland: Áform um laxveiðar í sjó valda áhyggjum

Áform Grænlendinga um laxveiðar í sjó valda áhyggjum nágrannaríkja segir á vefmiðlinum Alaska Dispatch. Þar kemur fram, að Grænlendingar hafi ekki stundað laxveiðar í sjó í áratug í þágu verndunaraðgerða. Nú hafi þeir hins vegar tilkynnt um stefnubreytingu, sem hafi verið rædd á fundi á Írlandi fyrr í þessum mánuði en sá fundur hafi ekki borið árangur.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS