Þýski stjórnalagdómstóllinn í Karlsruhe hefur til til athugunar hvort hann eigi að fresta úrskurði sínum um aðild Þýskalands að varanlegum björgunarsjóði evrunnar, ESM. Dómararnir höfðu boðað lyktir þess máls nú í vikunni.
Upplýsingafulltrúi sjóðsins sagði mánudaginn 10. september við AFP-fréttastofuna að dómararnir mundu koma saman til skyndifundar til að að taka ákvörðun um hvort orðið skuli við kvörtun þingmannsins Peters Gauweilers, úr CSU í Bæjaralandi, systurflokki CDU, flokks Angelu Merkel. Niðurstaðan yrði birt þriðjudaginn 11. september.
Þess hefur verið beðið með eftirvæntingu að dómstóllinn birti úrskurð sinn um ESM miðvikudaginn 12. september. Joachim Gauck Þýskalandsforseti neitaði að skrifa undir lög um aðild Þjóðverja að sjóðnum fyrr en niðurstaða stjórnlagadómaranna væri ljós. Hið sama gildir um aðild Þýskalands að ríkisfjármálasamningi ESB sem ritað var undir 2. mars 2012.
Gauweiler telur að ákvörðun ráðs Seðlabanka Evrópu fimmtudaginn 6. september um að hefja kaup ríkisskuldabréfa fyrir milligöngu ESM breyti eðli sjóðsins og óhjákvæmilegt sé að skoða það í ljósi þýsku stjórnarskrárinnar. Þá verði stjórnlagadómararnir einnig að segja álit sitt á því hvort skuldabréfakaup bankans séu almennt heimil miðað við stofnskrá hans og samþykktir.
Evruland er nýlenda Þýskalands
Nú þegar evran er að ná inn á á annan tuginn í vegferð sinni er margt að opinberast og raungerast með öðrum hætti en væntingar stóðu upphaflega til . Flest sem bendir nú til þess að hún muni ekki ná því að fylla tvo tugi og líði undir lok nú á næstu árum. Það dauðastríð mun ekki taka langa...
Stokkhólmur: Kveikt í bílum-íkveikjur í níu borgarhverfum-vandamál tengd innflytjendum
Í gærkvöldi og í morgun var kveikt í bílum í Stokkhólmi og ólæti breddust út til margra hverfa borgarinnar að því er fram kemur í Financial Times, sem segir að þetta hafi gerzt þrjá daga í röð. Lögreglan í Stokkhólmi hefur handtekið einhverja og segir stöðuna flókna vegna fjölda hverfa en bendir á, að staðan sé rólegri í Husby, hverfi, þar sem margi innflytjendur eru saman komnir.
Ítalía: Milljónir hafa ekki efni á að hita heimili sín eða borða kjöt
Milljónir Ítala hafa ekki efni á að hita upp heimili sín eða borða kjöt segir í nýrri skýrslu frá hagstofu Ítalíu, ISTAT. Efnahagslægð, sem staðið hefur í tvö ár hefur komið þungt niður á almennum borgurum, sem ganga meira og meira á sparnað sinn. Fjöldi þess fólks sem stendur svo höllum fæti, sem h...
Ný ríkisstjórn gerir hlé á aðildarviðræðum- nýjar viðræður ekki án þjóðaratkvæðagreiðslu
Af fréttum Morgunblaðsins í dag má ráða að ný ríkisstjórn muni gera hlé á aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið og að þær verði ekki teknar upp að nýju nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu. Samkvæmt heimildum Evrópuvaktarinnar verður gerð úttekt á stöðu viðræðnanna eins og þær standa nú og stöðu mála innan Evrópusambandsins.
Þrír fyrrverandi framkvæmdastjórar Saab handteknir - grunaðir um skattsvik
Þrír fyrrverandi framkvæmdastjórar Saab-bílasmiðjunnar í Svíþjóð hafa verið handteknir í Svíþjóð vegna gruns um bókhaldsbrot. Olof Sahlgren saksóknari telur að þremenningarnir hafi gerst sekir um alvarlegar tilraunir til að skjóta sér undan skattayfirvöldum.